Mýrdalshreppur

Call Directions Website

Mýrdalshreppur Á þessari síðu verða birt fréttir, tilkynningar, viðburðir og ýmislegt fleira jákvætt og skemmtilegt sem tengist öflugu lífi í Mýrdalshreppi.

Mýrdalshreppur hvetur húseigendur til að huga að gróðri á lóðum sínum og ganga úr skugga um að tré, runnar og annar gróð...
25/09/2026

Mýrdalshreppur hvetur húseigendur til að huga að gróðri á lóðum sínum og ganga úr skugga um að tré, runnar og annar gróður nái ekki út fyrir lóðarmörk þar sem þeir geta hindrað umferð gangandi vegfarenda eða skert sýn á götum og gatnamótum.

Mýrdalshreppur asks property owners to check the trees and bushes on their property. Branches must not reach out over sidewalks, paths or roads, or make it hard for drivers to see at junctions.

Mikilvægt er að gróður hindri ekki umferð gangandi vegfarenda

Vegna malbikunarframkvæmda verður Ránarbraut lokuð frá kl. 12:00 í dag og fram eftir degi.Vegfarendur eru beðnir um að s...
23/09/2026

Vegna malbikunarframkvæmda verður Ránarbraut lokuð frá kl. 12:00 í dag og fram eftir degi.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og virða merkingar á svæðinu.
_________________
Due to asphalt paving work, Ránarbraut will be closed from 12:00 noon today and for the remainder of the day.
Road users are kindly asked to exercise caution and follow all signs in the area.

Vegna malbikunarframkvæmda verður Ránarbraut lokuð frá kl. 12:00 í dag og fram eftir degi

Mýrdalshreppur óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf markaðs- og fjölmenningarfulltrúa 📣
08/09/2026

Mýrdalshreppur óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf markaðs- og fjölmenningarfulltrúa 📣

Mýrdalshreppur óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf markaðs- og fjölmenningarfulltrúa.

Heilahjálp með fræðslu um heilabilun í VíkHeilahjálp – samtök um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) bjóða til opinnar f...
27/08/2026

Heilahjálp með fræðslu um heilabilun í Vík

Heilahjálp – samtök um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) bjóða til opinnar fræðslu um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur á Hótel Vík í Mýrdal mánudaginn 31. ágúst kl. 16:30. Aðgangur er ókeypis og öll áhugasöm velkomin.

Á fræðslufundunum verður starf samtakanna kynnt og fjallað um þær áskoranir sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi góðra samskipta, aukins skilnings og stuðnings við aðstandendur.

Heilahjálp með fræðslu um heilabilun í Vík
Meiri þekking – minni fordómar

Eitt af meginmarkmiðum Heilahjálpar er að auka þekkingu og dýpka skilning á heilabilun og áhrifum hennar á líf einstaklinga og aðstandenda þeirra.

Það skiptir sköpum að tala opinskátt um heilabilun. Að segja frá greiningu getur dregið úr kvíða og einangrun, bæði fyrir þann sem greinist og aðstandendur. Með aukinni umræðu getum við einnig unnið gegn fordómum og stuðlað að skilningsríkara samfélagi.

Fræðsluna leiða Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Heilahjálpar, og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi hjá samtökunum.

Fundargestir fá aukinn skilning á breyttum aðstæðum, hagnýtar hugmyndir að bættum samskiptum og tækifæri til að fræðast og ræða málefni sem snerta marga. Fræðslan er ætluð einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öllum öðrum sem vilja auka þekkingu sína.

Nánari upplýsingar veitir

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Heilahjálpar
[email protected]
sími 86 86 056

26/08/2026

Vegna viðhaldsvinnu við götuskápa verður rafmagnslaust á Austurvegi í Vík frá kl. 10:00 til kl. 15:00 þann 27.8.2026. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá hér: https://s-rek-arcgis-y1.rarik.is/tilkynning/?ANNOUNCEMENT_ID=5763

Tímasetning atburðar: 27.08.2026 10:00 til 15:00

https://www.vik.is/is/allar-frettir/rafmagnsleysi-i-vik-27082026

Kæru íbúar Mýrdalshrepps. Tónskóli Mýrdalshrepps er nú að hefja sitt 45. starfsár. I ár verða nokkrar breytingar í rekst...
24/08/2026

Kæru íbúar Mýrdalshrepps. Tónskóli Mýrdalshrepps er nú að hefja sitt 45. starfsár. I ár verða nokkrar breytingar í rekstri skólans og mun stjórnun skólans vera í höndum stjórnenda Tónsmiðju Suðurlands. Við munum reyna að halda uppi svipuðu þjónustustigi og verið hefur undanfarin ár.

Nú er hægt að sækja um nám á eftirfarandi slóð: https://tonviska.is/form/82/3kLvH4zDERevaYtd/

Okkur hlakkar til komandi starfsárs og ekki hika við að hafa samband ef eitthvað er.
Bestu kveðjur
Ingibjörg Erlingsdóttir & Stefán Þorleifsson
[email protected]
https://www.vik.is/is/allar-frettir/skraning-er-hafin-i-tonskolan-i-vik

🗳️Kosningarnar 29. ágúst 2026🗳️29. ágúst 2026 verða þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi.Þú getur kosið utan kjörfundar frá 2...
20/08/2026

🗳️Kosningarnar 29. ágúst 2026🗳️

29. ágúst 2026 verða þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi.

Þú getur kosið utan kjörfundar frá 27. júlí.

Kosningarnar snúast um eina spurningu:

"Á Ísland að byrja aftur aðildarviðræður við Evrópusambandið?"

🗳️ Hlutverk Landskjörstjórnar

Landskjörstjórn sér um framkvæmd kosninganna.
Samkvæmt lögum á Landskjörstjórn að:

"kynna málið vel fyrir fólki."

Þessi bæklingur er hluti af því kynningarstarfi: https://www.thjodaratkvaedi.is/audlesid
📘 Um bæklinginn

Í þessum bæklingi er að finna einföld svör við þessum spurningum:

Hvað er Evrópusambandið?

Hvað eru aðildarviðræður?

Hver er munurinn á Evrópusambandinu og EES?

Hvað gerist ef þú segir JÁ?

Hvað gerist ef þú segir NEI?

⚖️ Málið er flókið

Evrópusambandið er stórt og flókið mál.
Þess vegna er erfitt að gefa einföld svör – og fólk er ekki sammála.

Sumir telja að aðild sé best fyrir Ísland, aðrir telja að utan við EES sé betra.

Þessi bæklingur getur ekki sagt hvað er rétt eða rangt.
Markmiðið er einfaldlega að upplýsa og gera málið skiljanlegra.

✍️ Höfundar og aðlögun

Textann skrifaði Lagastofnun Háskóla Íslands.

Markmiðið var að allir skilji textann – líka þau sem vita lítið um Evrópusambandið fyrir.

Auðlesið sá um að gera textann enn auðskiljanlegri.
📅 Nánari upplýsingar

Fyrir frekari upplýsingar um kosningarnar, kjörrétt, framkvæmd og annað:

🌐 www.landskjorstjorn.is
https://www.vik.is/is/allar-frettir/kosningarnar-29-agust-2026

Á Ísland að halda aðildar·viðræðum við Evrópu·sambandið áfram?

🗳Vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026🗳Kjörfundur hefst í Víkurskóla kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00Kjósendur eru minn...
19/08/2026

🗳Vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026🗳

Kjörfundur hefst í Víkurskóla kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00

Kjósendur eru minntir á að hafa meðferðis persónuskilríki og framvísa þeim sé þess óskað.

Einnig vekjum við athygli á að hægt er að slá inn kennitölu á vef þjóðskrár til að sjá hvort og hvar kjósendur eru á kjörskrá.

https://www.skra.is/folk/kjorskra-og-kosningar/hvar-a-eg-ad-kjosa/thjodaratkvaedagreidsla-2026/

Kjörstjórn Mýrdalshrepps

Hver er minn kjörstaður? Hér geta kjósendur kannað hvort og hvar þeir eru á kjörskrá fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu sem haldin verður þann 29. ágúst 2026.

Address

Smiðjuvegur 7
Vík
870

Opening Hours

Monday 10:00 - 12:00
12:30 - 15:00
Tuesday 10:00 - 12:00
12:30 - 15:00
Wednesday 10:00 - 12:00
12:30 - 15:00
Thursday 10:00 - 12:00
12:30 - 15:00
Friday 10:00 - 12:00

Telephone

+354 487-1210

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Mýrdalshreppur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share