Hundapössun smáhunda

Call Directions Contact the business

Hundapössun smáhunda Ég heiti Dagbjört og ég býð upp á hundapössun heima hjá mér fyrir smáhunda. Ég bý í raðhúsi á Selfossi. xx Ath að ég tek eingöngu við rökkum sem eru geldir.

- Við erum staðsett á Selfossi
- Upplýsingar um verð, hvort ég geti tekið við þínum hundi og fleira má finna undir "about/um"
- Þið finnið okkur einnig á IG: Garðurinn er alveg lokaður og er bæði pallur og gerfigras fyrir hundana að leika á. Sjálf á ég eldri papillon tík og tvær innikisur en þær eru báðar mjög geðgóðar og vanar öðrum hundum. Til að hundinum þínum líði sem allra best hjá mér er mikilvægt að með honum fylgi:
- Búr
- Bæli (ef hundurinn sækir mikið í það)
- Matur og matardallar
- Uppáhalds bein og nammi
- Taumur
- Uppáhalds leikfang

Að auki þarf að:
- Segja frá heilsufari hundsins
- Merkja það sem kemur með hundinum til mín svo að það fari nú örugglega allt aftur til baka
- Taka myndir af því sem hundurinn kemur með til mín og senda mér. Það er einnig til þess að það fari allt aftur heim með hundinum.


Ég á erfitt með að ganga með hunda í taum sem toga mikið og því hef ég valið að fara frekar í hundagerðið. xx Hundarnir sem hingað koma verða að geta verið með kisum og öðrum hundum. xx Hundarnir verða að geta sofið í búrum á nóttunni án þess að væla/gelta
xx Hundarnir verða að geta verið í búrum án þess að gelta þegar ég skrepp frá
xx Húsvanir hundar eingöngu, þ.e hundar sem pissa ekki inni. Verð:
Fyrsti og annar sólarhringur 5.500kr hvor
3.500kr á sólarhring eftir það
Rauðir dagar 5.500kr
Staðfestingargjald er 1/3 af upphæðinni sem greiða skal og er óendurkræft. Sendið endilega skilaboð á mig hér á síðunni fyrir frekari upplýsingar eða til að panta pössun :)

13/10/2026

Þetta er sko video en ekki mynd 😎⤵️ Ég þurfti að bregða mér af bæ í dag. Hundarnir voru settir í búr/gerði, Léttbylgjan sett á og dog cam stillt upp. Ég kíkti svo á stöðuna í gegnum cameruna stuttu eftir að eg fór út og sprakk úr hlátri 🤭🤭 Þá var Coco (sést ekki í mynd) að vera extra dramó við lagið All by myself með Celine Dion 😅 Lúnu stóð greinilega ekki alveg á sama en Orri komst í djúpslökun við þessa fallegu tóna 😅🦄 Njótið 🤭❤️

13/10/2026

Morgunmaturinn hjá sætu settur í þrautir 😎😍

11/10/2026

Systkinaástin 🙄 Elsku Lúna sæta og vongóða er aaaaltaf að reynað fá Orra í leik eins og í “gamla daga” 🥹 Orri orðinn topp leiður á henni og finnst allt annað og allir aðrir hundar meira spennó 🥹

08/10/2026

Ég nýtti góða veðrið í gær og skellti mér í pottinn með sætu voffs og prjónapælingar on the side 😎

26/09/2026

Það eru laus pláss í pössun hjá okkur systkinunum í haust og vetur 😃🥰 Það er þó því miður allt orðið fullt yfir jól og áramót, eða nánar tiltekið frá 15 des - 7 jan ❤️

Við byrjum að taka við bókunum fyrir sumarið og jólin 2027 fljótlega eftir áramót. Þá er auðvitað líka hægt að heyra í okkur með aðrar dagsetningar fyrir 2027 🥰

Sendið skilaboð á fb eða insta til að bóka núna fram að jólum😃🙏🏽❤️

26/09/2026

Nýjasta tilraunin á heimilinu er að gefa Orra matinn sinn í svona heilaþrautardóti. Hann er algjört átvagl og alla jafna því ekkert smá fljótur með matinn sinn. Svo er hann ofsa hress og kátur brasmundur og finnst allt svona svooooo gaman 🥰 Hann lærði á græjuna í fyrradag og er nú þegar orðinn of fljótur að leysa hana fyrir minn smekk 😅 Ég þarf að farað vinna með eitthvað erfiðara sem lengir tímann sem hann er að borða og gefur honum í leiðinni mental stimulation 🥰

Address

Urðartjörn 4
Selfoss

Telephone

+3548684718

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hundapössun smáhunda posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hundapössun smáhunda:

Shortcuts

Share

Category