04/03/2025
Sauðfjárbændur athugið.
Varðandi bólusetningu með Blandaða bóluefninu frá Keldum, þá er nú mælt með því að það þurfi að líða a.m.k. 4 vikur frá grunnbólusetningu þar til booster er gefinn. Leiðbeiningarnar sem nú er mælt með að notast sé við eru því eftirfarandi: 4 vikur eða fleiri ættu að líða frá grunnbólusetningu og þar til seinni bólusetning er gerð. Sú seinni má vera gerð stuttu ( innan við 2 vikum) fyrir sauðburð því mótefni munu fljótt komast yfir í broddinn. Starfsmenn Keldna rannsökuðu síðastliðið vor lömb sem talin voru að drepist hefðu vegna slefsýkingar(E.coli), lömbin voru send til krufningar að Keldum og mörg af þeim greindust með blóðsótt, clostridumsjúkdóm ( Blandaða bóluefnið á að veita vörn ). Það er því umhugsunarvert fyrir bændur þar sem mikil slefsýki er til staðara að bólusetja allar fengnar ær tvisvar sinnum þar sem möguleiki er á að blóðsótt, clostridium sýkingar eru valdar að dauða lambanna en ekki eingöngu slefsýki (E.coli sýking).
Það bólefni sem bændur hafa verið að bólusetja sauðfé með gegn slefsýki (Necolipor) og gaf góða raun, fæst ekki lengur en það er komið annað bóluefni (Suiseng Coli/C) á markað sem hefur verið að gefa góða raun í Bretlandi. Það er bólusett 6 vikum og svo aftur 3 vikum fyrir burð. Ef bændur vilja bólusetja gegn slefsýki (E.coli) þá hvet ég þá til að hafa samband sem fyrst svo hægt sé að tryggja öllum nægjanlegt magn af bóluefni.
Einnig er ég með Tribovax en ef menn eru að grunnbólusetja með því að þá þarf að gefa fyrsta skammt 6 til 8 vikum fyrir burð og seinni skammt ekki seinna en 2 vikum fyrir burð.
Jón Kolbeinn
8611986