28/10/2025
🎇Undirbúningur fyrir áramótin🎇
Nú fer að styttast í áramótin og því er gott að byrja að undirbúa hundana okkar!🐶🎧
Til þess að reyna að hljóðvenja þá, er hægt að spila flugeldahljóð heima, byrja lágt og fara hækkandi þegar hundurinn bregst ekki við – Mjög gott er að nota nammi og hrós til að tengja hljóðið við eitthvað jákvætt. 🔉🔊
Þeir sem hafa áður fengið róandi lyf fyrir áramótin eða telja dýrið sitt þurfa róandi lyf er mikilvægt að þeir hafi komið í skoðun á árinu og því gott að fara að huga að því. 🎆
Athugið við gefum ekki róandi lyf fyrir fyrstu áramótin hjá dýrum. 🐶
Oft er hægt að byrja á því að prufa stuðningsaðferðir svo sem: Adaptil (róandi feromónar), Happy Hoodie (hjálpar að draga úr kvíða), Thunder Shirt (hjálpar að draga úr kvíða), Calmex (töflur sem hjálpa við streituvaldandi aðstæður) og Calm fóður (hjálpar að viðhalda tifinningalegu jafnvægi).🧘♀️ Mælt er með að byrja á þessu 2-4 vikum fyrir streituvaldandi atburðin.