18/10/2026
Veiðinefnd lauk veiðiprófstímabilinu í gær 17.október með Meistaramótinu sem haldið var við Sólheimakot.
Þetta er skemmtilegur siður og gefur tækifæri til að taka létt óformlegt próf þar sem hundum er skipt í tvo flokka, minnavanir og meira vanir.
Dómarar í gær voru Halldór Björnsson og Guðlaugur Guðmundsson og settu þeir upp krefjandi próf og gáfu hundum stig eftir árangri á hverri stöð. Stig og árangur er hægt að sjá á heimasíðu Retriever deildar HRFÍ.
Prófstjórar voru Gísli Már Árnasonog Vidir Lar og Dagný Hinriksdóttir var með þeim í skipulagningu og undirbúningi.
Ég tók þátt með Heiðarbóls Dimmu í meira vönum og Heiðarbóls Esju í minna vönum. Einnig var Ásmundur Guðnason með Heiðarbóls Ösku og Þórhallur Atlason Tóti með Birtu Höfða Réttaholts Eldingu og Birtu Corgeus Réttarholts Þrumu í minna vönum. Við höfum verið að æfa saman og stutt hvorn annan í sportinu.
Öllum þessum hundum gekk mjög vel í gær og kláruðu sig vel af með þetta verkefni. Dimma var í fyrsta sæti í meira vönum og fór því heim með farandbikarinn í annað sinn.
Esja og Elding voru í öðru sæti jafnar í minna vanir, Þruma í 3 sæti og Aska í 4 sæti en það eru veitt verðlaun fyrir fyrstu 3 sætin.
Á lokahófinu um kvöldið voru veitt verðlaun fyrir stigahæsta hund á veiðiprófum sumarsins og eins fyrir stigahæstu hunda í hverjum flokki.
Stigahæsti hundur á veiðiprófum var:
• BFLW-23 OFLW-24 Drakeshead Fisk Of Leacaz í eigu Sigurmon Marvin Hreinsson og pabbi hvolpana í síðasta goti hjá okkur.
•
Stigahæsti hundur í OFL var:
• BFLW-26 OFLW-26 Heiðarbóls Esja, hún er jafnframt fyrsti hundurinn sem nær þessum tveimur nafnbótum á sama ári og fyrir 2 ára aldur, eins lauk hún tímabilinu í 3 sæti yfir stigahæstu hunda á veiðiprófum.
•
Stigahæstu hundar í BFL voru 3 með jafnmörg stig:
• Heiðarbóls Aska, eigandi og stjórnandi Ásmundur Guðnason
• Heiðarbóls Iða, eigandi og stjórnandi Gylfi Kristjánsson
• Kolkuós Örk, eigandi Sigurmon M. Hreinsson, stjórnandi Þuríður Elín Geirsdóttir
Þetta sumar hefur verið virkilega skemmtilegt hjá okkur í Heiðarbólsræktun og árangur eigenda og hunda frá okkur verið einstaklega góður. Við erum þakklát hvolpaeigendum að leggja svona mikla rækt við starfið og vitum að það eru aðrir eigendur ekki síðri sem vinna vel með sínum hundum á þeim sviðum sem á við.
Kærar þakkir enn og aftur til Retrieverdeildar HRFÍ og veiðinefndar fyrir skipulag og utanumhald á starfinu. Án þessa bakgrunnar væri erfitt að stunda þetta sport ef ekki ómögulegt. Dómarar vinna óeigingjarnt starf sem oft er gagnrýnt af ósekju eða ekki og eiga þakkir fyrir. Prófstjórar, fulltrúar og allt hjálparfólkið fyrir að skap umgjörð og aðstæður.
Nú er veiðin frammundan og að sjálfsögðu æfingar og viðhald á hundum til að gera sig klár í næsta verkefni.
Heiðarbóls hundar eru á fóðri frá Uniq sem fæst í Dýralíf
Dýralíf
UniQ Foods - For uniq dogs