14/10/2026
🍒🍃Ofnbökuð bleikja með basilíku, trönuberja- og möndlutoppi🍃🍒
Gómsæt uppskrift eftir Kristjana Steingrímsdóttir 💚
650-750 gr. bleikja
Salt og nýmalaður svartur pipar
Topping:
50 g þurrkuð trönuber, smátt söxuð
50 g ristaðar möndlur, gróft saxaðar
1/2-1 box VAXA basilíka, smátt söxuð
2 msk vorlaukur/ graslaukur, smátt saxaður
1 lítið hvítlauksrif, pressað
½ rauður chili, smátt saxaður
Rifinn börkur af ½ sítrónu
2 msk brætt smjör (eða 1 msk brætt smjör og 1 msk ólífuolía)
1 tsk hunang
Smá sítrónusafi
Klípa af salti og pipar
🌱Settu bleikjuna í ofnfast mót og kryddaðu með salti og pipar.
🌱Blandaðu öllu hráefninu fyrir toppinn vel saman í skál.
🌱Smyrðu blöndunni jafnt yfir bleikjuna og þrýstu létt niður svo hann haldist á.
🌱Bakaðu við 180°C í 12–15 mínútur (eða þar til bleikjan er rétt elduð).
Vörur VAXA fást í Krónan, Hagkaup og Fjarðarkaup 💚