19/08/2026
ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR? 🧐
Við óskum eftir duglegum, ábyrgum og metnaðarfullum einstakling til að ganga til liðs við teymið okkar í Dýralíf 🐾
Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf fyrir einstakling sem hefur áhuga á dýrum og hefur gaman af samskiptum við fólk.
Einnig er mikill kostur ef viðkomandi hefur áhuga á samfélagsmiðlum og markaðsmálum og gæti unnið með okkur í því 😊
Helstu verkefni:
➢ Afgreiðsla og þjónusta við viðskiptavini
➢ Móttaka og afgreiðsla pantana (útkeyrsla)
➢ Aðstoð við umsjón og þróun samfélagsmiðla fyrirtækisins
➢ Allskonar almenn störf sem falla til í verslun
Við leitum að einstaklingi sem:
➢ Er ábyrgðarfullur og getur unnið sjálfstætt
➢ Hefur ríka þjónustulund
➢ Hefur áhuga á dýrum og áhugi á hestum er einnig mikill kostur
➢ Hefur góða tölvukunnáttu
➢ Bílpróf á beinskiptan bíl og góð íslensku kunnátta er skilyrði
➢ Áhugi/kunnátta á samfélagsmiðlum og efnissköpun er mikill kostur
Fyrir allar nánari upplýsingar, ekki hika við að senda okkur tölvupóst á [email protected]
Ef þú hefur áhuga á starfinu má senda okkur ferilskrá og smá kynningarbréf á [email protected] - Við hlökkum til að heyra frá þér 🤩 🤎