20/10/2026
Tónlistarsjóður er mikilvægur innviður íslensks tónlistarlífs. Hann styður við frumsköpun, útgáfu, lifandi flutning, þróun og kynningu íslenskrar tónlistar, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi.
Eftirspurn eftir styrkjum úr Tónlistarsjóði er langt umfram það sem sjóðurinn getur annað. Í almennum úthlutunum ársins 2026 bárust samtals 773 umsóknir að heildarfjárhæð rúmlega 1,24 milljarða króna, en aðeins 127 verkefni fengu styrk. Heildarfjárhæð úthlutana nam um 149,5 milljónum króna, sem jafngildir því að sjóðurinn hafi aðeins mætt um 12% af þeirri fjárhagsþörf sem birtist í umsóknunum. Þetta sýnir hversu mörg metnaðarfull tónlistarverkefni fá ekki nauðsynlegan stuðning og hversu brýnt er að efla Tónlistarsjóð.
Íslenskt tónlistarfólk stendur jafnframt frammi fyrir aukinni alþjóðlegri samkeppni og örum breytingum á tónlistarlandslaginu. Íslensk tónlist er aðeins um 20% af tónlistarneyslu hér á landi. Breyttar dreifileiðir og þróun gervigreindar skapa nýjar áskoranir, meðal annars varðandi sýnileika, tekjumöguleika og höfundarrétt. Við þessar aðstæður er mikilvægt að tryggja tónlistarfólki raunhæf tækifæri til að skapa, þróa og kynna verk sín.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisins fyrir árið 2027 er fyrirhugað að lækka fjárveitingu Tónlistarsjóðs um 30,2 milljónir króna, úr 216,5 milljónum króna árið 2026 í 186,3 milljónir króna árið 2027.
Bandalag íslenskra listamanna kallar eftir því að fyrirhugaður niðurskurður verði felldur niður og fjárveiting til Tónlistarsjóðs hækkuð í að lágmarki 248,4 milljónir króna árið 2027, í samræmi við þróun launavísitölu.
Að efla Tónlistarsjóð er fjárfesting í íslenskri menningu og framtíð tónlistar. Öflugur sjóður skapar íslensku tónlistarfólki betri tækifæri til að skapa, þróa verk sín og koma þeim á framfæri, bæði hér heima og á alþjóðavettvangi. Jafnframt stuðlar hann að því að íslensk tónlist og tónlist á íslensku fái tækifæri til að dafna.
Mynd: fengin að láni hjá Tónlistarmiðstöð.