Animalía

Call Directions Contact the business

Animalía Fyrsta sólarhringsopna bráðamóttakan fyrir gæludýr! Við erum stödd að Jónsgeisla 95, 113 Reykjavík.

Skoðun/Komugjald:
Dagvakt virka daga 08-15:00: 27.485kr
Kvöld/nætur/helgar: 60.493kr Sólarhringsopin bráðamóttaka fyrir gæludýr - Engar tímabókanir

Skoðun dagvakt (kl.07:00 - 15:30) á virkum dögum: 24.986 kr. Skoðun kvöld- og helgarvaktir (kl.15:30 - 07:00), ásamt frídögum (kl. 00:00 - 24:00): 54.994 kr.

EDIT: Eigandi fundinn á mettíma - takk kæru vinir fyrir að deila ❤️Þessi myndarlegi herramaður er í heimsókn hjá okkur á...
01/09/2026

EDIT: Eigandi fundinn á mettíma - takk kæru vinir fyrir að deila ❤️

Þessi myndarlegi herramaður er í heimsókn hjá okkur á Animalíu eftir að hafa fundist einn úti hjá Krókhálsi. Hann er örmerktur, en örmerkið er ekki skráð á neinn eiganda, og hann er ekki með ól.

Hann fær knús og dekur þar til eigandi finnst 🐾🐶 Vinsamlegast hringið í síma 555-0112 til að vitja hans og endilega deilið fyrir okkur svo við finnum þau sem fyrst 🥰

24/06/2026

❤️Okkur vantar líklegast kattablóðgjafa!❤️

Kötturinn þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Á milli 1-7 ára
- Að minnsta kosti 4,5-5kg
- Rólegur og geðgóður - Ketti þarf þó alltaf að deyfa fyrir blóðtökuna
- Inniköttur
- Almennt heilsuhraustur og ekki á lyfjum
- Reglulega bólusettur og ormahreinsaður

Töluvert meira mál er að gera blóðgjöf hjá köttum og því gæti verið að þó að kötturinn standist öll þessi skilyrði þá henti blóðið samt ekki, byrjað er á að taka venjulega blóðprufu til að meta það.

Ef þú heldur að þú og kisinn þinn gætuð aðstoðað ykkur endilega hafið samband á netfangið [email protected]. Ef þið væruð til í að vera á lista hjá okkur sem blóðgjafi í framtíðinni fyrir næsta neyðartilfelli takið það þá endilega fram ❤️

13/04/2026

VARÚÐ - Eitrað fyrir dýrum í sumarbústaðahverfi í Kjós

Því miður hefur nú verið komið með tvö dýr til okkar á stuttum tíma sem hafa orðið fyrir frostlögseitrun eftir að hafa borðað pylsubita sem þau hafa fundið á jörðinni í sumarbústaðahverfinu Hvammur/Hvammsvík í Kjós. Sterkur grunur er um að hér sé um viljaverk að ræða.

Við viljum biðja alla nálægt að halda dýrum sínum inni og hafa augun vel opin fyrir pylsum/pylsubitum á glámbekk. Frábært væri ef íbúar/gestir á svæðinu gerðu sér gönguferð til að leita betur á svæðinu til að koma í veg fyrir að fleiri dýr verði fyrir eitrun.

Frostlögseitrun er mjög alvarleg og veldur hratt óafturkræfri nýrnabilun - Ef þig grunar að dýr þitt hafi innbyrt frostlög þarf það að komst undir læknishendur undir eins. Um leið og einkenni gera vart við sig er almennt of seint til að grípa inn í ferlið.

Ef pylsur eða annað grunsamlegt (t.d. fiskiflök eða annar matur) finnast á glámbekk á svæðinu þarf að farga því undir eins.

Endilega hjálpið okkur að deila þessu og látið vini og vandamenn á svæðinu með dýr vita. 💔

Satt eða ósatt?? Svar í higlights 🐾🤩
20/03/2026

Satt eða ósatt?? Svar í higlights 🐾🤩

Sagan hennar Töru 🐶Tara kom til okkar eftir að hafa verið mjög slöpp heima hjá sér. Við skoðun kom í ljós að maginn henn...
11/03/2026

Sagan hennar Töru 🐶

Tara kom til okkar eftir að hafa verið mjög slöpp heima hjá sér. Við skoðun kom í ljós að maginn hennar var mjög uppþembur, sem var staðfest með röntgen, og Tara var alvarlega veik.

Uppþembur magi (bloat) er oft fyrsta skrefið í þróun á magasnúning (GDV) hjá hundum 🚨

Maginn var tæmdur af lofti og Tara fékk meðhöndlun sem bjargaði líklegast lífi hennar. Nokkrum dögum seinna fór hún svo í fyrirbyggjandi aðgerð þar sem maginn er saumaður við kviðvegginn, með aðstoð magaspeglunartækis.

Aðgerðin gekk vel og í dag er Tara búin að ná fullum bata 🥰

Átt þú hund sem er í hættu á að fá magasnúning?
Vissir þú að fyrir þær tegundir hunda er mælt með fyrirbyggjandi aðgerð til að koma í veg fyrir að slíkt geti gerst?

Áhættan er mest hjá stórum og brjóstkassamiklum hundum svo sem þýskum fjárhundum, Stóra dana, Sankti Bernards, Doberman, írskum setter, standard púðlum o.fl.

Hjá Animalíu getum við gert slíka aðgerð með hjálp speglunartækis til að lágmarka stærð skurðar, minnka óþægindi og verki, og stytta bataferli.

Aðgerðin er gerð í gegnum ca. 7 cm skurð (fer eftir stærð dýrs) í hægri síðu dýrsins í stað stórs skurðar á miðjum kvið.

Viltu ræða áhættu hjá þínum hundi eða mögulegar forvarnir eins og gastropexy (magafestingu)?
Sendu okkur tölvupóst eða bókaðu ráðgjöf 🏥🐾

Simanr 555-0112 eða á netfang: animalia .is

Er dallurinn tómur? Og allar búðir lokaðar? 😬Komdu í fóðuráskrift hjá Animalíu og losnaðu við allt vesen 🐾Fáðu dýrafóður...
08/03/2026

Er dallurinn tómur? Og allar búðir lokaðar? 😬

Komdu í fóðuráskrift hjá Animalíu og losnaðu við allt vesen 🐾

Fáðu dýrafóður sent beint heim að dyrum eða sæktu til okkar á Jónsgeisla 95, við lokum aldrei 😉

Skráðu þig í áskrift strax i dag! 🐶🐱🐰

04/02/2026

EDIT: Fósturmamma er fundin ❤️

Við leitum að mjólkandi fósturtík handa nýfæddum hvolpi sem missti mömmu sína í nótt ❤️ Hvolpurinn er af miðlungsstórri tegund og er eldhress ❤️ Ef einhver er með mjólkaði tík og sæi sér fært að aðstoða má endilega hafa samband með emaili á [email protected] 🥺

🙌
09/12/2025

🙌

Dýralæknar vernda heilsu okkar allra

„Mér fannst það fyndið að hugsa um að hugtakið „bakteríur“ er algjörlega óskiljanlegt og framandi fyrir dýr. Og þegar ég hugsaði meira um það, áttaði ég mig á því að þetta hugtak er eiginlega óskiljanlegt fyrir mig líka. Ég veit að þær eru til —en aðeins vegna þess að fólk, sem er gáfaðra en ég, sagði mér það. Svo ég setti mig í spor dýranna og teiknaði þessa mynd.“ - Hugleikur Dagsson (Ísland)

Dýralæknar gegna lykilhlutverki við að ávísa sýklalyfjum á skynsaman hátt og vernda heilbrigði almennings. Sýklalyf ætti aðeins að gefa dýrum þegar dýralæknir ávísar þeim og nota þau samkvæmt leiðbeiningum.

🖌️🔗 Kynntu þér söguna á bak við : https://eu-jamrai.eu/raise-awareness/campaigns/sketching-antimicrobial-resistance/

🇪🇺

02/12/2025

Áramótin geta reynst sumum erfiðari en öðrum - undirbúum gæludýrin okkar vel ♥️

01/12/2025

Edit: Blóðgjafi er líklegast fundinn! Við þurfum hins vegar reglulega blóðgjafa hjá okkur þannig ef einhver gæti íhugað að vera á lista hjá okkur yfir mögulega blóðgjafa megið þið endilega hringja, kommenta eða senda okkur email 🥰🐶

Vantar blóðgjafa!❤️

Við erum með hund sem þarf á blóðgjöf að halda og vantar að öllum líkindum blóðgjafa. Gjafi þarf að vera almennt heilbrigður, undir 7 ára gamall (fer eftir tegund), helst yfir 30 kg, bólusettur og hefur ekki ferðast erlendis. Ef tík þá má hún ekki hafa verið hvolpafull.

Gæti einhver séð möguleika á að hjálpa okkur?
Einnig væri gott að vita ef einhver hefði áhuga á að vera á lista hjá okkur yfir blóðgjafa í framtíðinni ❤️

Address

Jónsgeisli 95
Reykjavík

Telephone

+3545444544

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Animalía posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Animalía:

Shortcuts

Share

Category