01/10/2026
Bossi (appelsíngulur) og Bambus (kremaður) eru bræður í leit af heimili.
Bossi og Bambus leika mjög mikið saman. Bossi er virkur köttur, hleypur mikið um og elskar athygli. Honum finnst gaman að horfa út um gluggann og að vera nálægt fólkinu sínu.
Bambus er algjör kelari, elskar að vera alveg upp í manni að kúra. Elskar að leika, sérstaklega með bolta,
kattabolta eða pappírsbolta, elskar að spila catch, alveg eins og hundar gera, og kann að gefa boltann aftur. Elskar líka að leika eltingarleik og feluleik með fólkinu sínu.
Þeir hafa alltaf verið innikettir en gætu vanist því að fá að kíkja út líka.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Bossa og Bambus. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti [email protected] eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.