Dýralæknaþjónusta Antoníu

Dýralæknaþjónusta Antoníu Dýralæknaþjónusta Antoníu þjónustar gæludýr í heimahúsum. Dýralæknaþjónusta Antoníu þjónustar gæludýr í heimahúsum, bændur og hestamenn.

Mörg gæludýr eiga erfitt með bílferðir eða líður illa í kringum önnur dýr og einnig er fjöldi fólks sem hefur ekki tök á að koma með gæludýr sitt til dýralæknis. Þá hentar oft best að fá dýralækni heim. Dýralæknaþjónusta Antoníu býður upp á persónulega og faglega gæludýraþjónustu á sanngjörnu verði sem framkvæmd er á þínu heimili þar sem dýrunum líður best. Um er að ræða árlegar heilsufarsskoðanir

, bólusetningar og ormahreinsanir, augn- og eyrnaskoðun, tryggingarskoðun, minniháttar sárameðhöndlun og samskonar þjónustu sem veitt er í komutímum á dýralæknastofu. Einnig er boðið upp á kettlinga- og hvolpaskoðun og örmerkingar. Dýralæknaþjónustan sinnir einnig heimaaflífun sé þess óskað. Þá fá eigendur að kveðja gæludýrið sitt í sínu umhverfi og geta einnig fengið loppufar sem minjagrip. Antonía Hermannsdóttir er stofnandi og eigandi Dýralæknaþjónustu Antoníu. Hún útskrifaðist sem dýralæknir árið 2018 frá University of Veterinary Medicine and Pharmacy í Kosice í Slóvakíu. Eftir útskrift bjó hún og starfaði í Bergen í Noregi sem dýralæknir á smádýrastofu, fyrir bændur og hestamenn. Árið 2021 flutti fjölskyldan til Íslands og starfaði Antonía á Dýralæknastofu Mosfellsbæjar um stund. Antonía er alin upp í Kjós og hefur einstaka umhyggju fyrir velferð dýra.

Address

Reykjavík

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Dýralæknaþjónusta Antoníu posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Dýralæknaþjónusta Antoníu:

Shortcuts

Share

Category