Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili

Call Directions Website Contact the business

Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili Ás hjúkrunarheimili

Það var svo sannarlega haldið upp á Bleika daginn í Ási í gær. Allt skreytt hátt og lágt  af heimilisfólki og starfsfólk...
22/10/2026

Það var svo sannarlega haldið upp á Bleika daginn í Ási í gær. Allt skreytt hátt og lágt af heimilisfólki og starfsfólki og Guðrún Lilja Jóhannsdóttir, Eyrún Samúelsdóttir og Hólmfríður Kristjánsdóttir prjónuðu og hekuðu slaufur og bönd handa þeim sem vildu bera og sýna með því stuðning. 🩷

En það var ekki nóg með að allt væri skreytt og fólk skartaði bleiku heldur voru líka bleikar kökur á boðstólum með kaffinu og nýbakaðar vöfflur með bleikum rjóma.
Dásamlegur dagur og allir svo glaðir bæði með tilbreytinguna og svo hinsvegar að fá að sýna þessu átaki Krabbameinsfélags Íslands og Bleiku slaufunnar stuðning. 🌸

Eden tenglar í Ási tóku að sér að skipuleggja haustferð fyrir heimilisfólk. Farið var á Lava safnið á Hvolsvelli þar sem...
20/10/2026

Eden tenglar í Ási tóku að sér að skipuleggja haustferð fyrir heimilisfólk. Farið var á Lava safnið á Hvolsvelli þar sem gengið var um safnið með leiðsögn. Komið var við á kaffihúsinu Auðkúlu og þar var boðið upp á vöfflur og kaffisopa.

Þetta var dásamleg ferð og allir sem nutu sín.🥰

Sigrún Sveinsdóttir var með myndavélina á lofti.

12/10/2026
28/09/2026

Kæru aðstandendur heimilisfólks á Grundarheimilunum

Eins og einhver hafa sjálfsagt orðið vör við nú þegar verður umfjöllun um notkun sterkra geðlyfja á hjúkrunarheimilum í fréttaskýringarþættinum Kveik nk þriðjudag. Samkvæmt okkar upplýsingum verður fjallað um mál sem tengjast Grund. Við höfum svarað fyrirspurnum frá Kveik með skriflegum hætti og munum senda nánari upplýsingar til aðstandenda þegar við höfum séð umfjöllunina í heild sinni.

Kær kveðja f.h. Grundarheimilanna

Karl Óttar Einarsson

forstjóri

Sönghópurinn Tjaldur gleður okkur reglulega í Ási með söngstundum.  Í gær komu þau til okkar og það voru sungin ýmis lög...
25/09/2026

Sönghópurinn Tjaldur gleður okkur reglulega í Ási með söngstundum. Í gær komu þau til okkar og það voru sungin ýmis lög sem allir kannast við.

Kærar þakkir fyrir heimsóknina kæru söngfélagar í Tjaldi. Hlökkum til að fá ykkur aftur í heimsókn.

Í tilefni af gulum degi fyrir skömmu tókum við okkur til í Ási  og fengum starfsfólk og heimilisfólk í lið með okkur og ...
23/09/2026

Í tilefni af gulum degi fyrir skömmu tókum við okkur til í Ási og fengum starfsfólk og heimilisfólk í lið með okkur og við hekluðum og prjónuðum bönd.

Markmiðið var að allir sem vildu gætu sýnt málstaðnum stuðning og borið armband.

Þetta fór fram úr björtustu vonum og til dæmis hekluðu heimiliskonurnar Eyrún, Hólmfríður og Guðrún um 120 bönd. Allir starfsmenn í Ási báru bönd og vakti þetta mikla lukku.

Þessi hópur úr Bæjarási skellti sér í gönguferð meðfram Varmá. Eiríkur Gylfi sem er í dagdvöl var leiðsögumaður enda fæd...
31/08/2026

Þessi hópur úr Bæjarási skellti sér í gönguferð meðfram Varmá. Eiríkur Gylfi sem er í dagdvöl var leiðsögumaður enda fæddur og uppalinn í Hveragerði.
Dásamleg ganga í fínu síðsumarsveðri. 🥰

Það er alltaf gott að fá sér ferskt loft. Heimilisfólk í Ási skellti sér nýverið í göngu kringum kirkjuna. Þar var verið...
26/08/2026

Það er alltaf gott að fá sér ferskt loft. Heimilisfólk í Ási skellti sér nýverið í göngu kringum kirkjuna.

Þar var verið að snyrta gróðurinn og við rákum augun í geitungabú sem var verið að fjarlægja, sem betur fer.

Það voru ekki amalegar móttökurnar sem gestir og gangandi fengu þegar þeir komu í heimsókn í Ás á Blómstrandi dögum.
25/08/2026

Það voru ekki amalegar móttökurnar sem gestir og gangandi fengu þegar þeir komu í heimsókn í Ás á Blómstrandi dögum.

Kærleikur, lífið og tilveran var umfjöllunarefnið þegar hún Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni kom og var með samverustun...
25/08/2026

Kærleikur, lífið og tilveran var umfjöllunarefnið þegar hún Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni kom og var með samverustund hér í Ási. Notaleg stund. 🥰

Address

Hverahlíð 20
Hveragerði
810

Telephone

480-2000

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ás, dvalar- og hjúkrunarheimili:

Shortcuts

Share