10/10/2026
🎉🐾 14 ára afmælisstelpan – Heljuheims Gefn aka Þruma! ❤️
Í dag fagnar elsku Þruma 14 ára afmæli sínu! 🥳❤️
Þruma er úr fyrsta gotinu okkar undir ræktunarnafninu Heljuheims, undan Svartskeggs Absolut Power og CIE ISCH Mir-Jan's Campari.
Í gotinu fæddust 10 systkini og í dag er Gefn sú eina sem enn er á lífi. ❤️
Það er bæði ljúft og svolítið tregafullt að hugsa til þess að hún sé sú síðasta úr þessum fyrsta hópi sem markaði upphafið að ræktunarævintýrinu okkar.
14 ár af minningum, ást og ómetanlegum augnablikum. 🐾❤️
Elsku Þruma, til hamingju með daginn! Við erum svo þakklát fyrir hvert ár sem við fáum með þér og vonum að við eigum enn fleiri fallegar stundir saman. ❤️🎂
Fyrsta gotið okkar, síðasta systkinið og að eilífu sérstakur hluti af sögu Heljuheims. ❤️🐾