Ingunn Reynisdóttir Dýralæknir

Ingunn Reynisdóttir Dýralæknir Dýralæknir, dýrahnykkjari, Stammer Kinetics meðhöndlun, taugalosun, tannraspanir, röntgenmyndatökur

Hér eru allir gripnir til að flytja sæði👮
02/08/2026

Hér eru allir gripnir til að flytja sæði👮

25/07/2026

Væsir ekki um merarnar

24/07/2026

Ekki æsingurinn hér. Hannibal í afslöppun.

Nýjar hestar í boði.  Erum að fá sent sæði úr Frosta frá Hjarðartúni  folatollur 160.000 + vsk og Sindra frá Hjarðartúni...
18/07/2026

Nýjar hestar í boði. Erum að fá sent sæði úr Frosta frá Hjarðartúni folatollur 160.000 + vsk og Sindra frá Hjarðartúni folatollur 200.000 + vsk

🌟Hörður frá Syðri-Völlum.🌟 Hörður er einstaklega geðprúður, mjúkur, sjálfberandi hestur, með allar gangtegundir góðar og...
30/06/2026

🌟Hörður frá Syðri-Völlum.🌟

Hörður er einstaklega geðprúður, mjúkur, sjálfberandi hestur, með allar gangtegundir góðar og gangskil góð. Skeið er efnilegt og á eftir að eflast með meiri styrk. Þeir sem hafa komið að þjálfun Harðar eru allir sammála um að það sé gaman að ríða honum. Hörður er með fyrir byggingu 8.39 og fyrir hæfileika 8.22. Aðaleinkunn 8.28. Hörður er undan Hannibal frá Þúfum og Snilld frá Syðri-Völlum. Hörður fer í hólf hérna á Syðri-Völlum eftir landsmót. Folatollur hagaganga og sónar er 75.000 kr plús vsk.

02/06/2026

🌟Ívar frá Syðri-Völlum 🌟

Einstaklega ljúfur og næmur 4v foli undan Rakel frá Sigmundarstöðum og Álfaklett frá Syðri-Gegnishólum. Á bak við þennan fola er margur snillingurinn meðal annars Stáli, Álfadís, Galsi og Kolfinnur í föðurætt og í móðurætt Óður, Mökkur og Borgfjörð. Ívar verður í hólfi hérna á Syðri-Völlum folatollur hagaganga og sònar 75.000 + vsk

20/05/2026

Stóðhestar sem verða í boði í sæðingum hjá okkur í sumar.

Folatollar + vsk
Álfaklettur frá Syðri Gegnishólum 220.000 Út Júlí
Álfhamar frá Syðri-Gegnishólum 100.000. Allt tímabilið
Brynjar frá Syðri-Völlum 150.000 Allt tímabilið. Allt innifalið sjá augl
Frosti frá Hjarðartúni 160.000
Grímar frá Þúfum 100.000 Stendur til boða í allt sumar.
Hannibal frá Þúfum 130.000 Allt tímabilið.
Hörður frá Syðri-Völlum 75.000 í hólfi. Líka hægt að sæða.
Ívar frá Syðri-Völlum 75.000 í hólfi. Líka hægt að sæða.
Sindri frá Hjarðartúni 200.000
við þetta bætist svo sæðing, hagaganga og umönnun sem er 110.000 + vsk.

Sæðingar hefjast 1 júni
Gjald fyrir sæðingu á meri er 110.000 kr án vsk
Innifalið í þessu gjaldi eru tvær sæðingar, sónarskoðanir, 2 x legskolun ef þarf og hormónameðhöndlun og ormalyfsgjöf við komu, hagaganga og umönnun í 35 daga. Eftir það bætist við daggjald sem er 850 kr á sólahring.
Ekki innifalið er frekari meðhöndlun og sýnataka ef grunur er um legbólgu.
Hryssur mega koma óskoðaðar, þær eiga að vera járnalausar og með vel snyrta hófa. Gott er að reyna að hafa komu þeirra sem næst egglosi og mega þær vera hér á Syðri-Völlum, þar til þær eru sónaðar fengnar. Við munum hugsa um þær eins og okkar eigin og fá þær fá ormalyf við komu. Ekki er tekin ábyrgð á því ef hryssa eða folald slasast meðan á dvöl þeirra stendur hjá okkur og getur komið auka kostnaðar vegna þess. Ef upp koma vandamál er haft samband við eiganda.
Öll hross, bæði hryssur og folöld þurfa að vera örmerkt og skráð þegar þau koma, ef þau eru það ekki þá bjóðum við upp á þá þjónustu.
Við leggjum metnað okkar í að bjóða upp á góða þjónustu bæði fyrir stóðhesteigendur sem og hryssueigendur.
Mikið og gott eftirlit er með aðbúnaði mera og folalda. Öll hross hafa ótakmarkaðan aðgang að rúmgóðum góðum högum og rennandi fersku vatni.
Frekari upplýsingar og pantar er hjá
Ingunn Reynisdóttur dýralækni sími 8932835
Pálmi Geir Ríkharðsson kennari/hrossabóndi sími 8490752 Sýna minna

💥Grímar frá Þúfum 💥Aðaleinkunn 8.80, sköpulag 8.41, hœfileikar 9.01.  Aðaleinkunn án skeiðs 8.92.  Verð á folatolli er 1...
05/05/2026

💥Grímar frá Þúfum 💥
Aðaleinkunn 8.80, sköpulag 8.41, hœfileikar 9.01. Aðaleinkunn án skeiðs 8.92. Verð á folatolli er 100.000 + vsk, við þetta bætist svo sæðing ,hagaganga og umönnun 110.000 + vsk. Fáum við sent sœði frá Þúfum úr Grímari fyrir landsmót.

💥Álfhamar Frá Syðri-Gegnishólum💥Kynnum til leiks Álfhamar frá Syðri-Gegnishólum, yngsta afkvæmi Álfadísar frá Selfossi o...
05/05/2026

💥Álfhamar Frá Syðri-Gegnishólum💥
Kynnum til leiks Álfhamar frá Syðri-Gegnishólum, yngsta afkvæmi Álfadísar frá Selfossi og undan Stála frá Kjarri.
Álfhamar er meðalstór, með öfluga yfirlínu og frábært geðslag. Fáum við sent sæði úr Álfhamri og byrjum í kringum 20 júni og verð auglýst síðar. Pantanir Ingunn sími 8932835, Pálmi 8490752

Heiðursverðlaunahesturinn Álfaklettur verður að sjálfsögðu í boði.⚡️Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum ⚡️Sköpulag 8.82, H...
05/05/2026

Heiðursverðlaunahesturinn Álfaklettur verður að sjálfsögðu í boði.
⚡️Álfaklettur frá Syðri-Gegnishólum ⚡️
Sköpulag 8.82, Hæfileikar 9.01, Aðaleinkunn 8.94.
Fáum sent sæði úr Álfaklett í sumar. Verð folatollur er 220.000 + vsk. Við þetta bætist svo gjald fyrir sæðingu, hagagöngu og umönnun 110.000 +vsk. Pantanir Ingunn 8932835, Pálmi 8490752

Address

Syðri-Vellir
Hvammstangi
531

Telephone

+3548932835

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ingunn Reynisdóttir Dýralæknir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category