11/08/2026
🐾 Fréttir af Östru og pöruninni 🐾
Við fórum með Östru í hvolpasónar í gær í von um góðar fréttir, en því miður sáust engir hvolpar að þessu sinni. 🥲
Við erum að sjálfsögðu vonsvikin, en svona er þetta stundum. Við ætlum hikstalaust að para aftur næst þegar Astra lóðar, þannig að stefnan er tekin á got næsta vor! 🌸
Hvolpalistinn er að sjálfsögðu virkur og ef þið viljið vera á lista fyrir gotið í vor þá geti þið skráð ykkur hér:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLScRBrbRybNgPmguMBKJxO_EnCBMvb4aV-YcQ-DuGAEnhQnoTg/viewform
Við þökkum fyrir allar kveðjurnar og stuðninginn og látum ykkur auðvitað vita þegar hlutirnir fara að gerast aftur. 🖤🧡
Umsókn/fyrirspurn um Gordon Setter hvolp úr fyrirhuguðu goti haustið 2026. Við leggjum mikla áherslu á geðgóða fjölskylduhunda en gotið er undan tveim frábærum hundum sem eru bæði einstaklega yfirvegaðir og geðgóðir heimilis- og fjölskylduhundar. Einnig eru þau bæði margfaldi...