23/06/2026
Er með ungan en efnilegan og framtíðar barna hest til sölu!!
IS2022153524
Smári er 4v geldingur sem gæti hentað unglingi jafnvel fyrir fyrsta hest! Hann hentar vel í hestaferðirnar og jafnvel í keppni
Hann er rólegur og yfirvegaður, hefur hingað til varla verið hræddur við neitt! Yndislegur í umgengni. Smári elskar klapp og knús, stendur kyrr á meðan farið er á bak.
Hann er á milliveg varðandi vilja, hann fer áfram þegar beðið er um það en er aldrei á móti því að hægja á. Sjálf hef ég alltaf notað hljóð og sæti og hann hlustar vel á það!! Er með fremur gamalt vídeó af honum í reið! Hann er góður einn og í samreið og hlustar alltaf á knapann sinn! Hefur farið í eina litla og stutta hestaferð og gekk það æðislega!! Hann flugteymist og hægt að teyma á honum en það hefur bara verið gert 2x.
Hann er ekki búin í gangsetningu en töltið kemur reglulega hreint en þó ekki alltaf! Getur verið bundinn en held að það myndi reddast á stuttum tíma miðað við hve fljótt hann lærir!
Smári þekkir allar helstu fimiæfingar en er ekki fullkominn í þeim.
Gæti vel hentað unglingi sem vill þjálfa eigin hest upp!!
Ef fyrsta hest er um að ræða er ég ekki á móti því að láta allt sem þarf fyrir fyrsta hest (það er þó dýrara)!
Eftirtalið hér;
Hnakkur, ístaðsólar, ístöð og gjörð.
Beisli = höfuðleður, mél, nasamúll og taumur
Annað: hlífar (230g), stallmúll+taumur x 2, ábreiða og kambar geta fylgt.
Frekari upplýsingar veittar í skilaboðum, endilega sendið á mig!!