24/09/2026
Þá er að koma að sýningu! Allar upplýsingar eru komnar á vefinn fyrir helgina!😊
Nokkrir punktar inn í helgina:
🐩STRANGLEGA BANNAÐ ER AÐ LEGGJA Á REIÐVEGUM - VIRÐUM ÞAÐ
🐩FRÍTT inn í boði ACANA (Petmark ehf. Heildverslun)
🐩Þeir sem ætla að hafa snyrtiborð þurfa að hafa undirbreiðslu undir þeim (teppi, handklæði/plast, eða þess háttar)
🐩Göngum frá eftir okkur og hendum rusli í tunnur, það er nóg af þeim en á seinustu sýningum hefur mikið rusl á gólfum verið skilið eftir - höldum teppunum fínum!
🐩Hundar skulu vera í stuttum taumi, langir taumar og flexi taumar eru ekki leyfðir á svæðinu!
🐩Pössum hvar við leggjum, bílar verða dregnir í burt ef þeir loka aðgengi að rúllum eða eru á reiðvegum
🐩Rósettusalan er á sínum stað, einungis er tekið við kortum þar
🐩Æskulýðsnefndin verður með veitingasölu!
🐩Ungir sýnendur byrja kl. 18:00 á föstudag, húsið opnar 17:00, laugardag og sunnudag byrjar hún kl. 9 og opnar húsið kl. 8 - sjá dagskrá á vefnum
🐩Við minnum félagsmenn á þau ákvæði í reglugerð nr. 80/2016 er varðar velferð gæludýra þegar valdir eru sýningartaumar og ólar. Félagið hvetur félagsmenn til að nýta sér búnað sem er í samræmi við ákvæði reglugerðarinnar.
🐩Tökum með góða skapið sem og kurteisina og njótum helgarinnar saman😊
🐩Minnum einnig á að skrifstofa félagsins er lokuð föstudaginn 25. september og mánudaginn 28. september vegna sýningarinnar
Við óskum ykkur góðs gengis og hlökkum til samverunnar um helgina
Þá er komið að haustsýningu félagsins! Sýningin verður haldin í reiðhöll Fáks í Víðidal og er alþjóðleg sýning. Skráðir á sýninguna eru um 900 hundar ásamt 45 ungum sýnendum. Dæmt verður í 6 sýningahringjum samtímis alla laugardag og sunnudag. Á föstudag verður keppn...