Dýralæknastofa Hafnarfjarðar

Call Directions Website Contact the business

Dýralæknastofa Hafnarfjarðar ​Dýralæknastofa Hafnarfjarðar er ný dýralæknastofa þar sem fagmennska, virðing og velferð gæludýra er í fyrirrúmi.

Að stofunni standa Silja og Sólrún dýralæknar og Berglind hundanuddari og hundaatferlisráðgjafi. Dýralæknastofa Hafnarfjarðar opnar bráðlega í Stakkahrauni 1, 220 Hafnarfirði. Skráðu þig á póstlistann okkar á www.dyrhfj.is og fáðu tilkynningu þegar stofan opnar. Stofan mun bjóða upp á alla helstu dýralæknaþjónustu. Á stofunni starfa:
Silja Edvardsdóttir, tannadýralæknir
Sólrún Dís Kolbeinsdóttir, dýralæknir
Berglind Guðbrandsdóttir, hundanuddari, hundaþjálfari- og atferlisráðgjafi.

05/10/2026

Bóluefnin eru komin 😍😍😍

Hér sjáið þið fallegu gullinsækjastelpuna hana Lúnu. Hún hefur þjáðst af gigtarbreytingum í olnboga í langan tíma. Hinga...
17/09/2026

Hér sjáið þið fallegu gullinsækjastelpuna hana Lúnu. Hún hefur þjáðst af gigtarbreytingum í olnboga í langan tíma. Hingað til hefur hún þurft á lyfjagjöf að halda til að lina verki, ásamt lasermeðhöndlun.
Lúna byrjaði á fóðrinu Royal Canin Joint Care Maxi fyrir nokkrum vikum og lífsgæði hennar hafa aukist svo mikið að nú er hún með öllu lyfjalaus. Hún heldur sér góðri með þessu fína fóðri og reglulegum laser 🥰
Alltaf gaman að deila því sem gengur vel 😍

04/09/2026

Kæru dýravinir ❤️
Eins og mörg ykkar vita hefur hundabóluefnið Recombitek verið ófáanlegt á landinu síðustu vikur.
Við höfum nú fengið sendingu af Eurican® P Forte sem er einþátta bóluefni sem inniheldur lifandi veiklaðan canine parvoveiruþátt og getur því nýst sem tímabundin lausn til að vernda hvolpa og aðra hunda gegn parvóveirusýkingu á meðan beðið er eftir Recombitek.
Ef þú átt hvolp sem bíður eftir grunnbólusetningu skaltu endilega heyra í okkur sem fyrst, þar sem takmarkað magn er í boði.

15/08/2026

Vilt þú vinna á litlum og samheldnum vinnustað?

Við leitum að starfsmanni í móttökuna okkar.

Hjá okkur er enginn dagur eins. Starfið er fjölbreytt og felst meðal annars í móttöku dýra og eigenda þeirra, símsvörun og þrifum.

Við leggjum ríka áherslu á jákvætt og heilbrigt vinnuumhverfi, góð samskipti og að hjálpast að í dagsins önn.

Vinnutími:
Mánudagar: 8-13
Þriðjudagar: 9-17
Miðvikudagar: 8-16
Fimmtudagar: 9-17
Föstudagar: 8-13

Nánari upplýsingar veitir Berglind í gegnum [email protected] og þangað má einnig senda umsókn ásamt ferilskrá.

Á miðvikudaginn ætlum við að loka kl. 15:00 til að leyfa starfsfólkinu okkar að njóta almyrkvans.Eins og vanalega bendum...
10/08/2026

Á miðvikudaginn ætlum við að loka kl. 15:00 til að leyfa starfsfólkinu okkar að njóta almyrkvans.
Eins og vanalega bendum við á bráðaþjónustu Animalíu utan opnunartíma :)

Þá eru vinningshafar afmælisgjafaleiksins okkar eru fundnir! 🥰Við viljum þakka öllum kærlega fyrir komuna og frábærar mó...
22/05/2026

Þá eru vinningshafar afmælisgjafaleiksins okkar eru fundnir! 🥰

Við viljum þakka öllum kærlega fyrir komuna og frábærar móttökur á 1 árs afmælinu okkar.
Það var svo gaman að fagna þessum áfanga með ykkur! Í tilefni af afmælinu vorum við með afslátt af öllum vörum en við vorum líka með gjafaleik sem allir sem komu við gátu tekið þátt í. Við höfum nú dregið vinningshafa sem voru einn köttur og einn hundur sem fengu pakka sérsniðna að þeirra heilsufari 🐱🐶

Sérstakar þakkir færum við samstarfsaðilum okkar hjá Fánu og Hill's Pet Nutrition Ísland, fyrir glæsilegar gjafir.

Heppin kisulóra vann:

🐱 Virbac Allerderm sjampó – milt og nærandi sjampó fyrir viðkvæma húð og feld
🐱 Dömes Pharma Ocryl augnhreinsi fyrir daglega hreinsun í kringum augun
🐱 Protexin PlaqEase tannduft til að setja út á matinn sem kemur í veg fyrir tannstein
🐱 Hill’s Science Plan Hairball & Perfect Coat þurrmat með kjúklingi
🐱 Hill’s Science Plan Sterilised Cat blautmat með laxi
🐱 Hill’s Science Plan Adult Chicken blautmat
🐱 Hill’s hjarta með catnip
🐱 Fallegan taupoka

Heppinn hvutti vann:

🐶 Virbac Allerderm sjampó
🐶 Dömes Pharma Ocryl augnhreinsi
🐶 Protexin PlaqEase
🐶 Virbac Anxitane sem styður við ró og vellíðan
🐶 Hill’s i/d Stress fóður fyrir viðkvæma maga og streitu
🐶 Hill’s Hypoallergenic Treats - ofnæmisnammi
🐶 Hill’s hjartatísta
…og þar sem Ronja á kisubróður fékk hann:
🐱 Hill’s hjarta með catnip
🐱 Protexin Dasuquin bætiefni fyrir liðina

Innilega til hamingju með vinningana og takk fyrir okkur 😍
Búið er að hafa samband við vinningshafa 🥰

Á morgun, föstudaginn 15. maí,  fögnum við 1 árs afmæli Dýralæknastofu Hafnarfjarðar 🥳Það er ótrúlegt að heilt ár sé lið...
14/05/2026

Á morgun, föstudaginn 15. maí, fögnum við 1 árs afmæli Dýralæknastofu Hafnarfjarðar 🥳

Það er ótrúlegt að heilt ár sé liðið síðan við opnuðum. Okkur var tekið með opnum örmum strax frá fyrsta degi og erum svo þakklátar fyrir traustið og hlýjuna sem þið hafið sýnt okkur.

Til að halda upp á daginn ætlum við að bjóða upp á 20% afslátt af öllum vörum í versluninni á afmælisdaginn 🎉

Við verðum líka með skemmtilegan gjafaleik þar sem allir sem skrá sig á staðnum eiga möguleika á að vinna glæsilega vinninga sem verða sérsniðnir að þeirra gæludýri 🐶🐱

Við hlökkum til að sjá sem flesta á morgun og fagna þessum stóra degi saman 😍

Takk fyrir fyrsta árið Hafnarfjörður! Við gætum ekki hugsað okkur betri viðskipta- og dýravini 🥰❤️

02/04/2026

🐣 Gleðilega páska 🐣
Það er lokað hjá okkur fram yfir páska. Sjáumst hress þriðjudaginn 7. apríl ❤️

16/03/2026

Nýja heimasíðan okkar er komin í loftið! 🎉

Nú getur þú bókað tíma fyrir gæludýrið þitt á heimasíðunni okkar. Þar finnurðu líka fróðlegar greinar um hunda og ketti, upplýsingar um þjónustuna okkar, okkur sjálf og Fear free stefnuna sem við störfum eftir.

Við hlökkum til að halda áfam að taka á móti tvífættum og ferfættum vinum okkar 😍

​Dýralæknastofa Hafnarfjarðar er ný dýralæknastofa þar sem fagmennska, virðing og velferð gæludýra er í fyrirrúmi. Að stofunni standa Silja og Sólrún dýralæknar og Berglind hundanuddari og hundaatferlisráðgjafi.

Address

Stakkahraun 1
Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 08:00 - 17:00
Tuesday 08:00 - 17:00
Wednesday 08:00 - 17:00
Thursday 08:00 - 17:00
Friday 08:00 - 17:00

Telephone

5332700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Dýralæknastofa Hafnarfjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Dýralæknastofa Hafnarfjarðar:

Share

Category