09/08/2026
Þvílíkur dagur! ❤️🏆
Írski setterinn okkar, Lillý
(ISSHCH NORDICCH CIE ISW23 RW-22-21-26 VOLW-25-26 Caemgen's Jump For Joy)
var í dag valin Besti hundur sýningar – BIS 1 á hundasýningu Hundaræktarfélags Íslands, sem haldin var á Víðistaðatúni í Hafnarfirði.
Rúmlega 950 hundar voru skráðir til leiks og Lillý stóð að lokum uppi sem besti hundur sýningarinnar. ❤️
Dagurinn byrjaði á því að hún varð Best of Breed (BOB), síðan sigraði hún tegundahóp 7 – BIG 1, og að lokum kom hápunkturinn þegar hún var valin Best in Show – BIS 1! 🏆
Þetta er jafnframt fjórða árið í röð sem Lillý vinnur tegundina á ágústsýningu Hundaræktarfélags Íslands.
Í dag bætti hún einnig við sig nýjum titli, Volcan Winner 2026 (VOLW-26). Fyrir er hún íslenskur, norðurlanda- og alþjóðlegur meistari ásamt fjölmörgum öðrum titlum.
Við erum ótrúlega stolt af þessari einstöku stelpu. Lillý er sannarlega glæsilegur og verðugur fulltrúi sinnar tegundar – Irish Setter. ❤️
Ástarþakkir fá Bubbi, sem sýndi Lillý svo glæsilega í dag, og Jóna vinkona, sem aðstoðaði við snyrtingu og undirbúning Lillýjar fyrir sýninguna. ❤️ Við erum óendanlega þakklát fyrir alla hjálpina, stuðninginn og ekki síst frábæra samveru.
Dómarar dagsins voru Henric Fryckstrand frá Svíþjóð og Leif-Herman Wilberg frá Noregi, og færum við þeim bestu þakkir fyrir að meta Lillý svona mikils.
Því miður getum við ekki tekið þátt á sýningunni á morgun þar sem ræktandi Lillýjar dæmir Irish Setter. Við óskum öllum sem taka þátt í tegundinni á morgun innilega góðs gengis. ❤️
Dagur sem við munum seint gleyma! 🏆❤️
English version
What a day! ❤️🏆
Our Irish Setter, Lillý
(ISSHCH NORDICCH CIE ISW23 RW-22-21-26 VOLW-25-26 Caemgen's Jump For Joy)
was awarded BEST IN SHOW – BIS 1 today at the Icelandic Kennel Club show, held at Víðistaðatún in Hafnarfjörður, Iceland.
With more than 950 dogs entered, Lillý finished the day as the overall Best in Show winner. ❤️
She started by winning Best of Breed (BOB), then went on to win Group 7 – BIG 1, before ending this unforgettable day by being awarded BEST IN SHOW – BIS 1! 🏆
This also marks the fourth consecutive year that Lillý has won the breed at the Icelandic Kennel Club's August show.
Today she also added another title to her name, Volcan Winner 2026 (VOLW-26). She is already an Icelandic, Nordic and International Champion, in addition to her many other titles.
We are incredibly proud of this very special girl. Lillý truly is a wonderful ambassador for her breed, the Irish Setter. ❤️
A very special and heartfelt thank you to Bubbi, who handled Lillý so beautifully today, and to our dear friend Jóna for helping with Lillý’s grooming and preparation for the show. ❤️ We are incredibly grateful for all your help and support, and especially for the wonderful time spent together.
Today's judges were Henric Fryckstrand from Sweden and Leif-Herman Wilberg from Norway, and we would like to thank them for thinking so highly of our girl.
Unfortunately, we are unable to show tomorrow, as Lillý's breeder will be judging Irish Setters. We wish everyone competing in the breed tomorrow the very best of luck. ❤️
A day we will never forget! 🏆❤️