11/08/2026
🐾 „Mig langar að taka þátt… en veit ekki hvort þetta sé fyrir mig, ég er bara ekkert í hlaupaformi.“
Ég er búin að heyra þetta af og til í Óstöðvandi síðustu daga þegar ég spyr fólk:
Ertu búin/n að skrá þig í hundahlaupið ?
Svo nú ætlum við að koma einu á hreint:
ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ VERA HLAUPARI TIL AÐ TAKA ÞÁTT Í HUNDAHLAUPINU! 🧡🐕
Skoðið myndirnar frá því í fyrra. 👇
Þarna er Hundahlaupið í hnotskurn.
Börn og fullorðnir.
Ungir og eldri.
Stórir hundar og pínulitlir hundar.
Fólk sem hleypur hratt.
Fólk sem skokkar.
Fólk sem gengur.
Og fólk sem þarf greinilega bara aðeins að leggja sig eftir þetta allt saman. 😂🐕
ÞETTA er nákvæmlega það sem Hundahlaupið á að vera ❤
Við erum með tvo flokka svo öll geti tekið þátt:
🥳 2 km skemmtiskokk
Þar snýst þetta EKKI um tímann. Þú mátt hlaupa, skokka eða ganga. Þetta er flokkurinn fyrir þig sem vilt einfaldlega koma, upplifa stemninguna og gera eitthvað skemmtilegt með hundinum þínum.
⏱️ 5 km með tímatöku
Fyrir þau sem vilja hlaupa aðeins lengra, skora á sig eða hundinn sinn og sjá hvað þau geta.
En af hverju erum við yfirhöfuð að halda Hundahlaupið?
Ekki vegna þess að Ísland vantaði enn eina hlaupakeppnina.
Ó NEI! Okkur vantaði flottan viðburð fyrir HUNDAFÓLKIÐ. 🧡
Dag þar sem hundarnir okkar eru í forgrunni.
Þar sem þeir mega mæta.
Þar sem þeir eru meira en velkomnir — þeir eru ástæðan fyrir því að við erum þarna. 🐕🥹
Hundahald á Íslandi á það enn til að vera litið hornauga. Hundar mega ekki hingað, ekki þangað og stundum mætti halda að best væri að þeir sæjust bara sem minnst.
En við erum FULLT af fólki.
Við eigum hunda.
Við elskum hundana okkar.
Þeir eru hluti af fjölskyldunum okkar.
Og einu sinni á ári ætlum við að mæta saman með hjörtun stútfull af gleði, fylla svæðið af hundum og fólki, hafa ógeðslega gaman og sýna hversu stórt, fjölbreytt og frábært hundasamfélagið á Íslandi er. 🙌🐾
Svo ef þú ert búin/n að hugsa:
„Ég er ekki nógu góð/ur hlaupari.“
„Hundurinn minn er svo lítill.“
„Við verðum örugglega síðust.“
„Ég veit ekki hvort þetta sé fyrir mig…“
HÆTTU AÐ OFHUGSA ÞETTA. 😎
Enginn þarf að vera „nógu góður“ fyrir Hundahlaupið.
👉 Þú þarft bara að mæta og eiga góða stund með hundinum þínum ❤
Taktu hundinn.
Taktu börnin.
Taktu makann.
Taktu vinina.
Gangið 2 km ef þið viljið. Skokkið. Hlaupið. Keppið. Hlægið. Skemmtið ykkur.
Það er pláss fyrir ykkur. 🧡
🎯 Skráning í Hundahlaupið 2026 hér fyrir neðan 👇
🐾 Mætum. Höfum gaman. Verum sýnileg.
Sjáumst í Hundahlaupinu 2026! 🎉🐕
Kv
Kolla í Óstöðvandi