08/06/2024
Það er komið að tímamótum hjá Sporthundum 🤎
Vefverslunin mun sameinast vefverslun Dýralífs og því mun Sporthundar.is loka brátt, en engar áhyggjur þú finnur allar vörur Sporthunda inná vefverslun Dýralífs sem og í verslun að Höfðabakka 1.
Nú getur þú því pantað vörur og sótt í verslun 🫶
Engin breyting verður á afhendingarmöguleikum né á fóðuráskriftum og við leggjum mikla áherslu á að veita snögga, góða og persónulega þjónustu - nú með enn meira vöruúrval.
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í verslun okkar að Höfðabakka 1, eða senda ykkur vörur um allt land!
Takk fyrir að versla við Sporthunda, við erum ótrúlega þakklát fyrir alla okkar viðskiptavini og vonumst til að sjá ykkur öll í Dýralíf.
https://dyralif.is/collections/sporthundar
Ef einhverjar spurningar vakna ekki hika við að hafa samband á [email protected].