Dýralæknaþjónusta Auðnu Hjarðar

Call Directions Contact the business

Dýralæknaþjónusta Auðnu Hjarðar Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Dýralæknaþjónusta Auðnu Hjarðar, Veterinarian, Hlaðir (sama bílaplan og Bókakaffi), Fellabær, Egilsstaðir.

Þessa vantar því miður ennþá heimili. Endilega látið mig vita ef þið hafið áhuga og eg gef ykkur upplýsingar um núverand...
21/09/2026

Þessa vantar því miður ennþá heimili. Endilega látið mig vita ef þið hafið áhuga og eg gef ykkur upplýsingar um núverandi eiganda 🥰

Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður og Breiðdalsvík á morgun! Einhverjir lausir tímar ennþá!
21/09/2026

Fáskrúðsfjörður, Stöðvarfjörður og Breiðdalsvík á morgun! Einhverjir lausir tímar ennþá!

Þá er komið að fyrstu tilraun að komast á ferðina til ykkar. Nokkrir staðir eru með sömu dagsetningu, ef fjöldi verður meiri en ég treysti mér til að komast yfir á einum degi, þá getur dagsetningin í þínu þéttbýli færst um 1-2 daga. Þetta er allt með fyrirvara um að veðu...

Núna ætla ég að henda mér í djúpu laugina og skella inn hérna "könnun" sem þið megið fylla út ef þið viljið nýta ferðina...
16/09/2026

Núna ætla ég að henda mér í djúpu laugina og skella inn hérna "könnun" sem þið megið fylla út ef þið viljið nýta ferðina þegar að ég verð á ferðinni.
Ég leyfi mér að setja fyrirvara á þetta allt saman, ég verð pínulítið að sjá þátttökuna, hversu víða ég þarf að fara um þéttbýlin og hversu mikið ég þarf að gera í hverri vitjun.
Ég tek við ábendingum varðandi þetta, ég er frekar léleg í tæknimálum, þannig að það kæmi mér ekkert á óvart að eitthvað virki ekki 😅

Þá er komið að fyrstu tilraun að komast á ferðina til ykkar. Nokkrir staðir eru með sömu dagsetningu, ef fjöldi verður meiri en ég treysti mér til að komast yfir á einum degi, þá getur dagsetningin í þínu þéttbýli færst um 1-2 daga. Þetta er allt með fyrirvara um að veðu...

02/09/2026

Heil og sæl, öll sem eitt!
Frá og með föstudeginum 4.9. til og með þriðjudagsins 15.9. ætla ég að fá að taka mér smá pásu frá dýralækningum til að smala saman kindunum mínum og aðeins að endurnæra sálina. Það er búið að vera frekar mikið að gera hjá mér og ég finn að ég er farin að teygjast ansi þunnt. Við viljum nú ekki að allt fari í bál og brand, þannig að þetta er besta lausnin.
Ekki örvænta þó, ég tek alltaf við skilaboðum og svara þeim eftir bestu getu og þeir sem að eiga pantað hjá mér á þessum tíma fá að sjálfsögðu að halda þeim bókunum. Kúabændur fá líka að vera á sérsamningi hjá mér, þeir geta alltaf heyrt í mér 😇
Ég ætla að reyna að nýta tímann líka í að skipuleggja reglulegar heimsóknir í þéttbýlin hérna á Austurlandi, ég er ekki búin að gleyma því sko 😉 Það er nefnilega þetta með tímann og hvað hann vill fljúga hratt frá mér 😅😅

Ég þakka innilega fyrir skilninginn 🥰

  heimilið gekk ekki upp! # Dimmu vantar aftur heimili 🥺Dimmu vantar heimili! Dimma er 7 mánaða hvolpur (fædd í febrúar)...
18/08/2026

heimilið gekk ekki upp! # Dimmu vantar aftur heimili 🥺

Dimmu vantar heimili!
Dimma er 7 mánaða hvolpur (fædd í febrúar) sem vantar nýtt heimili vegna óvæntra aðstæðna. Hún er mjög fjörug, þarf mjög mikla athygli, þarf mikla hreyfingu (væri best í dreifbýli) og sennilega væri betra að hún væri ekki eini hundurinn á heimilinu. Hún er 50% Border Collie og 50% Labrador og hefur orkuna úr báðum áttum.

Ef þið viljið skoða málið eða hafið spurningar, endilega sendið mér skilaboð ❤

03/08/2026

NESKAUPSTAÐUR! #
Ég verð á ferðinni á fimmtudag (6.8.) með einhverja lausa tíma. Ef ykkur vantar skoðun/bólusetningu eða eitthvað sem hægt er að afgreiða í heimahúsi, þá megið þið endilega senda á mig 😊

16/07/2026

Heil og sæl!

Ég verð lítið við eitthvað á næstunni þar sem að ég verð að fá að heyja handa kindunum mínum fyrir veturinn. Það sem að er bókað hjá mér er ennþá á dagskrá en annað verður því miður að fá að bíða þangað til að heyskap er lokið.

Vonandi njótið þið veðurblíðunnar 😁

07/07/2026

Smá tilkynning!
Ég ligg með pest og er eiginlega alveg rúmliggjandi.
Ég hef verið að reyna að svara skilaboðum eins og að ég get, en vildi bara koma þessu á framfæri svo að enginn móðgist yfir seinum svörum 😅
Ég ætla að vona að ég fari að hrista þetta af mér þar sem að þetta er farið að vera frekar leiðigjarnt, en ég verð samt að hlusta á líkamann og taka því rólega.
Ég reyni að svara sem minnst í símann, þar sem að þetta hefur áhrif á röddina og hún er ekki upp á marga fiska eins og er 🙈

23/06/2026

Heil og sæl!
Mig langar örlítið að athuga með áhugann hjá gæludýraeigendum varðandi eftirfarandi:
Ef ég myndi festa einn dag, t.d. 1x mánuði, til að koma í ykkar þéttbýli til að sinna minniháttar skoðunum (bólusetningum, ormahreinsun, heilsufarsskoðun og þess háttar), væri áhugi fyrir því að reyna það? Ég kæmi þá í heimahús að sinna dýrunum.
Hér erum við helst að tala þéttbýlin á Seyðisfirði, Reyðarfirði, Eskifirði, Norðfirði, Fáskrúðsfirði og Borgarfirði.
Þetta er bara hugmynd í vinnslu og áður en að ég fer að leggja meiri hugmyndavinnu í þetta, þá er betra að athuga hvort að þið mynduð nýta ykkur þetta.

Ég hlakka til að heyra frá ykkur 😃

26/05/2026

Sæl verið þið öll sem eitt!
Núna fer sauðburðartimanum bráðlega að ljúka og þá fer að verða hægt að taka fleiri verkefni að sér, ég allavega 😊
Ég ætla hinsvegar að fá að taka mér frí næstkomandi fimmtudag og föstudag (28.-29. maí) til að reyna að endurhlaða batteríin eftir mikið álag.
Ég vona að þetta gangi upp fyrir alla. Vonandi verð ég orðin eins og ný manneskja næsta mánudag og get farið að hlaða niður bókunum 😁
Farið vel með ykkur og takk fyrir allt hingað til 🥰

Address

Hlaðir (sama Bílaplan Og Bókakaffi), Fellabær
Egilsstaðir
701

Opening Hours

Monday 09:00 - 17:00
Tuesday 09:00 - 17:00
Wednesday 09:00 - 17:00
Thursday 09:00 - 17:00
Friday 09:00 - 16:00

Telephone

+3548482700

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Dýralæknaþjónusta Auðnu Hjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Dýralæknaþjónusta Auðnu Hjarðar:

Shortcuts

Share

Category