Laxdals ræktun - silky terrier

Directions

Laxdals ræktun  - silky terrier Silky terrier eru fjörugir og góðir heimilishundar.

30/09/2026

Nýtt leiksvæði komið í stofuna 🐾💕 Það er svo gaman að fylgjast með þeim og sjá persónuleikana koma meira og meira í ljós 🩷💚💙

27/09/2026

Dagarnir fara mest í að sofa, borða, kúra og uppgötva heiminn smátt og smátt🐾
Við fáum bara að fylgjast með og njóta þess að sjá þá stækka🤎

20/09/2026

Byrjar daginn á að gefa litlu hvolpunum sínum að drekka, klórar sér aðeins og skellir sér svo út í sveitina. Þar er nóg að þefa, hlaupa, borða smá gras og njóta lífsins á stóra túninu🌿🤎
Svo er f engið sér smá að borða og aftur farið til hvolpanna sinna 🥰
Lífið er ljúft 🐾🐾

16/09/2026

Sá síðasti er loksins mættur 👀💙

🎂🎉🐾 Til hamingju með 4 ára afmælið, elsku B-got! 🥰🐾Systurnar Bonný og Babúska, halda upp á daginn hér heima hjá okkur ❤️...
15/09/2026

🎂🎉🐾 Til hamingju með 4 ára afmælið, elsku B-got! 🥰🐾

Systurnar Bonný og Babúska, halda upp á daginn hér heima hjá okkur ❤️🐾 Þær fá extra góðan mat og gott dekur 🐾

15/09/2026

Ég var búin að bíða eftir þessu og auðvitað varð ég að taka upp smá myndband 😍🐾

13/09/2026

Það er ótrúlegt hvað fyrstu vikurnar í lífi hvolpa eru sérstakar 🥰

Þessir þrír litlu Laxdals-hvolpar eru orðnir 11. daga gamlir og heimurinn þeirra et mjög einfaldur:
mamma, mjólk, hlýja og svefn ❤️
Þeir sofa allan sólarhringinn og vakna til að finna mömmu sína og drekka. Þeir eru rólegir og duglegir að drekka og allir þrír eru að þyngjast vel 🐾

👀 Þroskinn á þessum punkti:
Augun: Enn lokuð, augun opnast í kringum tveggja vikna aldur og næstu dagar verða því spennandi að sjá hvaða hvolpur mun opna augun fyrst 🥹
Heyrn: Þau eru ekki komin með heyrn. Fyrstu vikurnar treysta hvolparnir fyrst og fremst á lykt og snertingu til að finna mömmu sína.
Hitastig: Nýfæddir hvolpar geta ekki stjórnað líkamsh*tanum sínum almennilega og þurfa því mömmu, systkini og hitagjafa hjá sér til að halda á sér hita.

Svo er eitt svolítið skemmtilegt sem maður hugsar kannski ekki út í: Mamma sér um allt! 😂❤️
Litlir hvolpar geta ekki enn séð sjálfir um þvag og hægðir eins og fullorðnir hundar. Búska hjálpar þeim með því að sleikja þá og örvar þannig bæði þvaglát og hægðir.

Búska stendur sig ótrúlega vel, hún er mjög vakandi yfir litlu krílunum sínum, en er samt aðeins farin að gefa sér tíma frá þeim og kemur þá gjarnan til mín í smá einkaknús og klapp ❤️

Hér eru þau þrjú núna:
💙 Hvolpur 1 – blái strákurinn (Fyrstur í heiminn – 450 g)
🩷 Hvolpur 2 – bleika stelpan (Önnur í heiminn – 480 g)
💚 Hvolpur 3 – græni strákurinn (Sá síðasti – og orðinn stærstur, 545 g)

Næstu dagar verða spennandi hér á bæ 🤠 Hvaða hvolpur mun opna augun fyrst? 👀❤️

Besta Bella á 8 ára afmæli í dag! 🎂🎉🐾8 ár af gleði, tryggð, kúrum og ómetanlegum félagsskap ❤️Hún er sannarlega hjartað ...
11/09/2026

Besta Bella á 8 ára afmæli í dag! 🎂🎉🐾

8 ár af gleði, tryggð, kúrum og ómetanlegum félagsskap ❤️
Hún er sannarlega hjartað á heimilinu og gerir hvern dag aðeins betri 🥰

Í gær, 2. september, fæddust þrír yndislegir og heilbrigðir hvolpar 🥰Búska stóð sig eins og hetja og kom þremur litlum h...
03/09/2026

Í gær, 2. september, fæddust þrír yndislegir og heilbrigðir hvolpar 🥰

Búska stóð sig eins og hetja og kom þremur litlum hvolpum í heiminn. Þegar kom að þeim fjórða gekk því miður ekki allt sem skyldi. Hann var fastur og því þurfti að grípa inn í og fara með Búsku í keisara. Því miður lifði fjórði hvolpurinn ekki af ❤️‍🩹

Búsku heilsast vel og er farin að njóta mömmuhlutverksins. Hún er svo mikil mamma, umhyggjusöm og passar mjög vel upp á þá 🥰🐾

💙 2 rakkar
🩷 1 tík

M: Laxdals Babúska
F: Ricochet Chosen By Paradise Passion

30/08/2026

Babúska að njóta 💓💓
Gengin 61 dag -
Ég held hún muni gjóta 1. sept. 👏

Address

Nátthagi
Egilsstaðir
701

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Laxdals ræktun - silky terrier posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category