Sólarblíðu-Tsang Apso

Directions Website

Sólarblíðu-Tsang Apso Tibet terrier á uppruna sinn að rekja til Tíbet.
Þeir eru ekki terrier hundar. Eru í raun stórir Lhasa Apso. Enda heita þeir Tsang Apso í Tíbet.

Bretinn sá þá og breytti nafninu þar sem þeir líkjast terrier hundum. Uppruni/saga
​Tibet terrier á uppruna sinn að rekja til Tíbet. Þrátt fyrir nafnið sitt þá tilheyrir tegundin ekki terrier hundum. Tegundin fékk ensku nafngiftina frá evrópskum ferðamönnum því útlitslega svipar tegundinni á margan hátt terrier tegundum. Í Tíbet ber tegundin nafnið Tsang Apso sem mætti þýða sem lubbalegur eða skeggjaður apso hundur. Saga tegundarinnar er löng eða yfir 2000 ára. Sögulega hefur hlutverk tegundarinnar verið lukkudýr, varðhundur, smalahundur og selskapshundur. Þeir voru einnig notaðir til að sækja hluti sem fellu niður fjallshlíðar. Tegundin er einnig þekkt sem hinn heilagi hundur Tíbet og var aldrei seldur heldur gefin af munkum til að stuðla að gæfu. Af þessari ástæðu eru forfeður tegundarinnar ekki mjög margir.
Árið 1922 kom Dr. Agnes Greig með fyrsta hundinn af þessari tegund til Evrópu. Agnes fékk tíkina sem var gyllt og hvít að gjöf eftir að hafa framkvæmt aðgerð á sjúklingi í Tíbet. Tíkin fékk nafnið Bunti. Seinna fékk Agnes rakkann Rajah og hóf hún þá ræktun tegundarinnar árið 1924. Tegundin er skyld öðrum tegundum og hefur verið notuð til frekari þróunar á þeim, m.a. Shih Tzu, Lhasa Apso, Tibetan Spaniel o.fl.

Ég er smá nölli þegar kemur að þessu með hundana mína. Vil vita hvað hundar eru ofar í ættbókum. Hef hitt slatta af hund...
30/09/2026

Ég er smá nölli þegar kemur að þessu með hundana mína. Vil vita hvað hundar eru ofar í ættbókum. Hef hitt slatta af hundum líka. En í gær þá var pabbi hans Tedda 5 ára.
Hérna eru mynd af Ömmu hans og afa með gotið og mynd af pabba hans ❤️

Við litli rass kíktum á sýningu í dag. Mættum snemma til að horfa á Lhasahópinn okkar. Jasmine var svakalega dugleg að b...
27/09/2026

Við litli rass kíktum á sýningu í dag. Mættum snemma til að horfa á Lhasahópinn okkar.
Jasmine var svakalega dugleg að bíða. Var bara með mér í dag. Hoppandi og vildi athygli, mjög góð umhverfisþjalfun.
Salka systir vann tegundina. Skuggasögu-ræktun / Skuggasaga Kennel
Jasmine fékk VG en flottan dóm. En Exelent temperament ❤️
Við ætluðum ekki að mæta á nóvembersýninguna. Mér leiðist þrengslin inni þessari höll. En það verður mögulega Tibetan Terrier dómari næst sem er líka ræktandi. Svo Jasmine mætir aftur.

Glaði góði fallegi strákurinn minn. Hann er minn alla leið. Hefur verið það frá því við sóttum hann úti í Danmörku. Hann...
24/09/2026

Glaði góði fallegi strákurinn minn. Hann er minn alla leið. Hefur verið það frá því við sóttum hann úti í Danmörku.
Hann hefur svo allt að bera að nota afram í ræktun. Flott stærð, frábært geðslag, hreinn af öllu með DNA, hrein augu, hreinir olnbogar og B í mjöðmum. Ég er ekkert lítið spennt að sjá hvað hann mun gefa hérna í stofninn. ❤️ Vonum að hans fyrsta got verði 2027.

Þessi skvísa heldur mér á tánum alltaf. Hún fer sínar leiðir að hlutunum. Opnar hurðar, hoppar uppá borð, lætur aldeilis...
24/09/2026

Þessi skvísa heldur mér á tánum alltaf. Hún fer sínar leiðir að hlutunum. Opnar hurðar, hoppar uppá borð, lætur aldeilis vita ef vatnið er ekki kalt í skálinni inni (drekkur úr drullupollum uti) og núna ákvað hún frá því hún byrjaði að lóða og allt búið. Þá varla leið vika 😂 En hún er svo yndisleg, heilsuhraust, falleg og með drauma geðslag. Hef ennþá ekki fundið hund sem hún tekur ekki. ❤️

Kíktum út í hlaup. Mér finnst þau svo oft þreytt þegar við höfum verið I burtu og þurfa tíma að lenda. Það var svo gott ...
24/09/2026

Kíktum út í hlaup. Mér finnst þau svo oft þreytt þegar við höfum verið I burtu og þurfa tíma að lenda. Það var svo gott að fara út í þetta veður. ❤️

24/09/2026

Eigendur komnir heim og lóðari búið. Takk rútína að komast reglulega í náttúruna.

Við Jasmine mætum enda engin kennelhosti hérna. Ég hef fengið kennelhosta til mín og það er alls ekki gaman. Sleppti þá ...
24/09/2026

Við Jasmine mætum enda engin kennelhosti hérna.
Ég hef fengið kennelhosta til mín og það er alls ekki gaman. Sleppti þá að sjálfsögðu að mæta á sýningu. Verum heima ef dýrin okkar eru veik ❤️

Vegna kennel hósta viljum við minna sýnendur á mikilvægi þess að gæta varúðar á septembersýningu HRFÍ og hjálpast að við að draga úr smithættu. Ef hundurinn þinn sýnir einkenni kennelhósta, vinsamlegast haltu honum heima og komdu ekki með hann á sýningarsvæðið. Kennelhós...

Jæja mér tókst að Jinxa. Ekki tókst pörun í þetta skiptið svo við reynum aftur næst ❤️Erfitt að segja hvenær næst er 2.5...
23/09/2026

Jæja mér tókst að Jinxa.
Ekki tókst pörun í þetta skiptið svo við reynum aftur næst ❤️

Erfitt að segja hvenær næst er 2.5 mánuður til 7. Fer allt eftir hvað Hneta ákveður hvenær næst er og hvað það er langur tími. 😂

Er mögulegt að Hneta hafi farið í svokallað stytt tímabil að lóða og gæti lóðað aftur innan nokkurra vikna. Ráðfæri ég mikið við ræktendur erlendis. ❤️

Ég er líka mjög meðvituð um hvað mikið er af gotum í gangi í dag. Ef ég gæti haft þetta þannig að kæmi bara 1 hvolpur sem ég gæti átt þá væri þetta fullkomið fyrir mig.
En ég get ekki haldið eftir öllum. Þarf að finna heimili fyrir hina. ❤️

Got eru svo langt frá því tekinn uppúr hatti. Það eru komin 3 ár síðan ég fór að leita af fullkomnum rakka fyrir tíkurnar mínar. Átti 3 þá. En bara 1 af þeim fannst mér henta afram í ræktun. Hún Hneta mín. ❤️

Jasmine dóttir Hnetu fer í myndatöku eftir næsta lóðarí. Verður spennandi hvað kemur þar út. Þar sem hún treður sér allstaðar eins og köttur. 🤣
Allt annað er flott í áframhaldandi ræktun ❤️

Svo mögulega verða hjá mér 2 got næsta sumar ❤️ Sjáum bara til hvernig staðan verður að finna heimili fyrir þá sem ég held ekki eftir.

Þessi pörun sem ég er að bíða eftir yrði sú fyrsta á Íslandi þar sem báðir hundar eru clear af DM(Degenerative myelopathy) sem er svo gott að fá í stofninn hérna á Íslandi.
Ekki skemmir heldur hvað þau eru æðisleg. Geðslag og heilbrigði ❤️ Hneta og Teddy

Jasmine er carrier/ Teddy er clear ❤️

Ég hef átt hunda síðan 2002 en var samt kattarkona sem krakki.
Ég fer samt bara á mína fyrstu HRFÍ hundasýningu í mars 2022. Þá var bara ekki snúið aftur. Bara Vá ❤️ Síðan þá hef ég kynnst helling af ræktendum útum allan heim. Ég er búin að vera með 1 got. Farið 3 sinnum á Crufts og 1 sinni á Heimssýninguna. Hvolpur úr mínu fyrsta goti verður gjaldgeng á Crufts, eg skrái hana þar. Fyrsti Íslenskt ræktaði TT skráður ❤️ Ég mætti en ekki hundurinn enda smá vesen að fara með hund frá Íslandi.

Það er meira segja á planinu að fara til Nepal 2027 (búið að borga staðfestingargjald) og fræðast meira um uppruna og tegund.

En ef þið eruð ennþá að lesa þá ætla ég að koma mér að efninu.
Ég stefni á fluttninga erlendis á næstu árum. Ég vil fara út með stóðið mitt og sýna þau þar. Bæði er meira af hundum í boði og meira frelsi með að þvælast á sýningar og hafa gaman.❤️

Það eru hinsvegar 2 paranir sem mig langar í áður en ég fer. En það er ekki 100% að það náist. Munið gotin eru ekki tekin uppúr hatti.

Það verður ekki hækkun á verði. Sama verð síðustu 3 ár. Það er mjög veglegur startpakki sem fylgir okkar hundum á ný heimili.
T.d grindarbur, ferðabur, motta vetbed, Bókin um TT tegundina (Vídeó á síðunni sem höfundur segir frá henni) Handklæði, sjampó og fleira. Sjáið í Lynk nákvæmlega hvað ❤️

En að setja inn umsókn þá er ekkert bindandi. Hvort þú fáir hund eða þurfir að taka hund.

https://docs.google.com/forms/d/12EY2nFPN_iaWbz70MTdByd0AcSCSOI8qoGcNZr0qb8Y/viewform?chromeless=1&fbclid=IwY2xjawLF6sJleHRuA2FlbQIxMQABHkYHIzcgzewK-m475mWuju3v03IAW1yG8nVfC9h8sgBK62BxAVyQchbIhr2g_aem_jvyPsOgtTsOwyldvodldOw&edit_requested=true

DNA niðurstöður hjá Hnetu.
18/09/2026

DNA niðurstöður hjá Hnetu.

14/09/2026

Ég var svo heppinn með eintak. Þvíliki gullmolinn sem þessi hundur er. Hann var síðastur eftir í gotinu. En hann er svo fullkominn. Hreint DNA, hrein augu, B mjaðmir, hreinir olnbogar, flott stærð, heilsuhraustur og dásamlegt geðslag Kennel Shim-bu -Opdrætter af tibetanske terrier

Address

Akranes

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Sólarblíðu-Tsang Apso posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category