06/02/2024
Það er mjög mikilvægt að hlusta á hestin. Þessi æðislega hryssa kom til mín og var fyrst í áttina að vera auðtamin. Var komin á bak á henni mjög fljótlega og alltaf gekk vel.
En allt í einu fór hún svo að mótmæla beislinu. Var alltaf með kjaftin galopin og hausin útum allt, eins og rokstjarna, og mátti varla koma við taumin. Þetta fanst mér ekki vera henni líkt og fékk dýralækni til að kíkja á hana sem fann ekkert að, en sá að hún var enþá með nokkrar folalda tennur. Og gæti verið aum í þeim (sennilega fullorðins tönn að ítta) en meðan engin tönn er laus, er ekkert gert í því. Bara prufa önnur mél var mér ráðlagt, ég prufaði allskonar mél, lét hana éta með mél aftur, prufaði að láta hana vera lengur með mélin meðan hún át og allskonar. Ekkert var að hjálpa henni.
Svo ég ákvað að prufa þrátt fyrir að hún er ung og ekki mikið tamin. Að prufa kaupa mélarlaust beisli.
Ég byrjaði fyrst á að vinna með henni hendi í með beislið, svo skellti ég mér á bak. Og það var svo mikil munur að vera á henni sáttri. En ekki með hausin út um allt ❤️