VoffaVist

Call Contact the business

VoffaVist VoffaVist gætir hunda á meðan aðrir fjölskyldumeðlimir bregða sér af bæ. Fjölskyldan er mér allt og dýrin mín. Ég á þrjá hesta, fjóra hunda og þrjá páfagauka.

Ég er kona á besta aldri, er gift og saman eigum við fimm börn og átta barnabörn sem fylla líf mitt gleði og ást. Dýraástin mín kviknaði strax í æsku, og ég vissi snemma að ég ætlaði mér að verða dýralæknir og vann á dýraspítala í nokkur ár. Þó lífið hafi leitt mig á aðrar brautir, hefur ástríða mín fyrir dýrum alltaf verið í forgrunni.
Ég lærði hundasnyrtingu og hef verið að snyrta af og til og alltaf séð um mína hunda hvað það varðar.
Ég rak dýrahótel í nokkur ár sem var einn besti tími lífs míns og síðan þá hef ég bara alltaf verið að passa hunda. Tryggð hunda er einstök og ástin skilyrðislaus og kannski þess vegna sem mér finnst nærvera þeirra vera dýrmæt og nauðsynleg í mínu lífi.

Ég vældi og grét eiginlega alla barnæskuna, reyndi að ræna hundum hér og þar og ef ég fann hund úti þá gerði ég allt til að reyna að ná eignarhaldi á honum en ekkert gekk fyrr en ég varð 12 ára gömul en þá gafst mamma upp og sagði OK 😊Þá fékk ég hana Perlu mína – yndislega púðlutík sem lifði með mér í 18 ár. Hennar mun ég alltaf sakna. Síðan þá hef ég alltaf átt hunda, og helst fleiri en tvo í einu! Dýrin eru ekki bara félagar mínir, heldur lífsins yndi og sálarfylgjur. Hvort sem það eru hestar, hundar, fuglar eða önnur dýr þá gæti ég ekki hugsað mér lífið án þeirra, lífið væri bara ekki.

Stuð í desember 2024
07/02/2025

Stuð í desember 2024

Heimasæturnar og nokkrir gestir
17/12/2024

Heimasæturnar og nokkrir gestir

Ormurinn í heimsókn um páskana
02/04/2024

Ormurinn í heimsókn um páskana

Nokkrar myndir frá sumrinu
31/08/2023

Nokkrar myndir frá sumrinu

02/07/2023

Velkomin á VoffaVist

Address

Esjugrund 55
Reykjavík
116

Telephone

+3548642067

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when VoffaVist posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to VoffaVist:

Shortcuts

Share

Category