27/02/2026
Ég er að kanna áhuga á fóðurheimili fyrir tæplega tveggja ára Papillon tík á fullan fóðursamning. Um er að ræða vel gerða og efnilega tík þar sem ég held öllum ræktunarrétti undan henni, en hún myndi búa hjá fóðurheimili sem fjölskylduhundur út lífið.
Mikilvægt er að heimilið sé staðsett á höfuðborgarsvæðinu þar sem reglulegt samstarf og aðgengi er nauðsynlegt. Æskilegt er að tíkin mæti á hundasýningar; fóðurheimilið þarf þó ekki sjálft að sjá um sýningarhald þar sem hægt er að finna aðila til að sýna hana ef þörf krefur. Þá er mikilvægt að feldhirðu sé sinnt af kostgæfni og reglusemi, enda er feldumhirða veigamikill þáttur í umhirðu Papillon hunda. Einnig er lögð áhersla á áframhaldandi umhverfisþjálfun og góða félagsmótun.
Markmiðið er að kanna hvort áhugi sé fyrir hendi og finna heimili sem er tilbúið í traust og metnaðarfullt samstarf til lengri tíma, þar sem velferð hundsins er ávallt í forgangi.
Áhugasamir eru hvattir til að senda mér skilaboð til að fá frekari upplýsingar og nánari útskýringar á fyrirkomulagi fóðursamnings.