Hestamannafélagið Sprettur

Call Website Contact the business

Hestamannafélagið Sprettur Hestamannafélagið Sprettur á Kjóavöllum varð til við sameiningu Gusts Kópavogi og Andvara í Garðabæ.

Einn laus tími hjá Árnýju Oddbjörgu á miðvikudögum kl.16:00, skráning á abler.io og er opin.
22/10/2026

Einn laus tími hjá Árnýju Oddbjörgu á miðvikudögum kl.16:00, skráning á abler.io og er opin.

Verkleg kennsla Knapamerki​Kennd verða öll stig verklegra Knapamerkja í Spretti í haust og vetur, ef skráning næst. Miða...
21/10/2026

Verkleg kennsla Knapamerki
​
Kennd verða öll stig verklegra Knapamerkja í Spretti í haust og vetur, ef skráning næst. Miðað er við 3-4 nemendur í hóp. Hægt er að nýta frístundastyrkinn við greiðslu á öllum stigum KM. Ef eldri en 21 árs hafa áhuga á að sækja námskeið í Knapamerkjum vinsamlegast hafið samband við thordis(hja)sprettur.is. Skráning er opin og stendur til 20.nóv. Hér er beinn hlekkur á skráningu á abler.io - https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6NzAxMzA=?

KM1:
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum, ýmist í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll, tímasetning ca kl.16:30 (skýrist nánar við skráningu og fjölda) Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 21.des. Samtals 10 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 37.000kr. Kennari er Þórdís Gylfadóttir.

KM2:
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum, ýmist í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll, tímasetning ca kl.17:15 (skýrist nánar við skráningu og fjölda) Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 21.des. Samtals 14 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 48.000kr. Kennari er Þórdís Gylfadóttir.

KM3:
Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum, ýmist í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll, tímasetning ca kl.18:00 (skýrist nánar við skráningu og fjölda) Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 27.jan. Samtals 18 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 63.000kr. Kennari er Þórdís Gylfadóttir.

KM4:
​Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum, ýmis í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll. Tímasetningar ca. milli kl.16-18 (fer eftir skráningu og fjölda). Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 2.febrúar. Samtals 22 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 72.000kr. Kennari er Teresa Evertsdóttir.

KM5:
​Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum, ýmis í Samskipahöll eða Húsasmiðjuhöll. Tímasetningar ca. milli kl.16-18 (fer eftir skráningu og fjölda). Námskeiðið hefst 23.nóv og lýkur 18.febrúar. Samtals 26 tímar. Verð fyrir yngri flokka er 88.000kr. Kennari er Teresa Evertsdóttir.

Opið fyrir umsóknir fyrir Áhugamannadeild Spretts 2027
21/10/2026

Opið fyrir umsóknir fyrir Áhugamannadeild Spretts 2027

Nú er undirbúningur komin á fullt fyrir nýtt keppnisár í Samskipadeildinni, Áhugamannadeild Spretts. Opnað hefur verið fyrir umsóknir og þurfa öll lið sem

Uppskeruhátíð ungra Sprettara 5. nóvember! Nú er komið að því að fagna frábæru hestaári og skemmtilegu starfi ungra Spre...
20/10/2026

Uppskeruhátíð ungra Sprettara 5. nóvember!

Nú er komið að því að fagna frábæru hestaári og skemmtilegu starfi ungra Sprettara! Fimmtudaginn 5. nóvember verður uppskeruhátíð ungra Sprettara haldin með pompi og prakt í veislusal Samskipahallarinnar. Húsið opnar kl. 18:30 og verður boðið upp á fordrykk við komu. Hátíðin sjálf hefst kl. 19:00.

Á hátíðinni ætlum við að fagna liðnu keppnis- og starfsári, veita viðurkenningar, rifja upp skemmtilegar stundir og gleðjast saman yfir árangri unga fólksins okkar - allt frá pollum til unglinga.

Öllum ungum Spretturum verður boðið í glæsilegt veisluhlaðborð og ís í eftirrétt! Foreldrar, fjölskyldur og aðrir velunnarar eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir og geta keypt sér mat á 4.500 kr.

Það verður nóg um að vera á hátíðinni! Við ætlum að spreyta okkur í skemmtilegri spurningakeppni, skella í eitt stutt bingó og eiga saman frábæra kvöldstund. Og ekki nóg með það – allir ungir knapar fara heim með glaðning að hátíð lokinni! Uppskeruhátíðin er frábært tækifæri til að koma saman, njóta góðs matar og skemmtilegrar samveru og fagna öllu því góða starfi sem fram hefur farið á árinu.

Nauðsynlegt er að skrá sig á Abler.io svo hægt sé að áætla fjölda gesta og panta mat fyrir alla. Beinn hlekkur á skráningu hér: https://www.abler.io/shop/hfsprettur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6Njk5Njg=?

Við hvetjum alla unga Sprettara til að mæta og eiga með okkur skemmtilega kvöldstund!

Takið daginn frá – við hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Æskulýðsnefnd Spretts

Árshátíð Spretts laugardaginn 14. nóvemberTakið daginn frá! Nánari upplýsingar verða birtar fljótlega.
15/10/2026

Árshátíð Spretts laugardaginn 14. nóvember
Takið daginn frá! Nánari upplýsingar verða birtar fljótlega.

Árshátíð Spretts verður haldin laugardaginn 14. nóvember.

Fjórir ungir Sprettarar voru valdir í U21-landslið Íslands í hestaíþróttum fyrir starfsárið 2026–2027 en tilkynnt var um...
09/10/2026

Fjórir ungir Sprettarar voru valdir í U21-landslið Íslands í hestaíþróttum fyrir starfsárið 2026–2027 en tilkynnt var um hópinn í gær, fimmtudaginn 8.okt.

Stúlkurnar eru:
- Guðný Dís Jónsdóttir
- Elva Rún Jónsdóttir
- Herdís Björg Jóhannsdóttir
- Apríl Björk Þórisdóttir

Sigvaldi Lárus Guðmundsson, landsliðsþjálfari U21, kynnti nýjan 20 manna landsliðshóp þann 8. október síðastliðinn. Það er mikill heiður fyrir Sprett að eiga fjóra fulltrúa í þessum sterka hópi, enda hafa stúlkurnar allar sýnt mikinn metnað, dugnað og glæsilega takta á keppnisvellinum.

Fram undan er spennandi tímabil hjá U21-landsliðinu, en stærsta verkefnið verður Heimsmeistaramót íslenska hestsins sem fram fer í Rieden í Þýskalandi árið 2027.

Aðeins fimm sæti eru í boði í ungmennaflokki á heimsmeistaramótinu og því ljóst að mikil samkeppni verður um þau. Landsliðshópurinn mun á næstu mánuðum taka þátt í markvissum undirbúningi, fræðslu og viðburðum í samstarfi við A-landslið Íslands.

Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá árangur þessara ungu Sprettara, sem allar hafa lagt hart að sér og sýnt hvað ástundun, metnaður og ástríða fyrir hestamennsku geta skilað.

Þær eru fyrirmyndir fyrir yngri iðkendur félagsins og sýna svo sannarlega að framtíðin er björt hjá Spretti.

Hestamannafélagið Sprettur óskar Guðnýju Dís, Elvu Rún, Herdísi Björgu og Apríl Björk innilega til hamingju með landsliðsvalið og óskar þeim alls hins besta í þeim spennandi verkefnum sem fram undan eru.

Áfram Sprettur!

08/10/2026

Keppnisárangur 2026 - í meðfylgjandi frétt má finna form til að skila inn upplýsingum um keppnisárangur ársins.

Ný námskeið að hefjast! Í komandi viku hefjast ný námskeið hjá hestamannafélaginu Spretti. Laus pláss eru á sum námskeið...
04/10/2026

Ný námskeið að hefjast!

Í komandi viku hefjast ný námskeið hjá hestamannafélaginu Spretti. Laus pláss eru á sum námskeiðin, má þar nefna;

- Frumtamninganámskeið með Róberti Petersen
- Reiðnámskeið hjá Þorvaldi Árna
- Hestafjör Ungra Sprettara
- Sátt hestaatferli

Allar nánari upplýsingar og skráningu má finna á

Finndu námskeið í vefverslun Hestamannafélagið Sprettur. Keyrt áfram af Abler

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar hefur veitt þremur ungum Spretturum afreksstyrki í seinni úthlutun afreksstyrkja árs...
04/10/2026

Íþrótta- og tómstundaráð Garðabæjar hefur veitt þremur ungum Spretturum afreksstyrki í seinni úthlutun afreksstyrkja ársins 2026. Það eru þær Elva Rún Jónsdóttir, Guðný Dís Jónsdóttir og Herdís Björg Jóhannsdóttir sem hljóta 100.000kr afreksstyrk hver fyrir góðan árangur árið 2026. Til hamingju með styrkinn stelpur og góðan árangur á árinu.

Móttaka á plasti fimmtudaginn 8. október
02/10/2026

Móttaka á plasti fimmtudaginn 8. október

Fimmtudaginn 8. október, milli klukkan 18:00-19:00 verður tekið á móti plasti í gámi sem staðsettur er á bílaplaninu/heyrúllustæðinu fyrir ofan Samskipahöll.

Address

Hestheimar 14-16
Kópavogur
203

Telephone

+3546204500

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Hestamannafélagið Sprettur posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Hestamannafélagið Sprettur:

Shortcuts

Share

Category