10/06/2026
Núna kl 17:40, 10. Júní eigum við eftir 31nm að But of Lewis. Við ættum þá að ná til Stornoway snemma í fyrramálið. Eftir að við fundum rétta vindinn suður af Surtsey höfum við siglt hliðarvind til 55° gráðu beitivind og hefir hraðinn verið 6 til 9 hnútar og Sæúlfurinn ljúfur við okkur. Eina markverða sem hefur gerst er saumspretta á faldinum á genúunni sem var reddað við berstu aðstæður. Og svo var það helvítis klóstið sem heimtaði athygli. Sem betur fer var allt um borð sem þurfti til að redda því skitajobbi.