14/10/2026
Í gær komu frægir hrossaræktendur í heimsókn, þau Sólveig kennd við Miðsitju og Magnús í Kjarnholtum, ásamt Ernu vinkonu sinni.
Það var glatt á hjalla með vísum og söng. Teknir voru fram ungir stóðhestar og Magnús hafði mikinn áhuga á að sjá höfðingjann Hrók. Fórum við því með gestina í flóann þar sem Hrókur er ásamt veturgömlum sonum sínum. Magnús var svo ánægður að hann brast í söng!
Jón var að lýsa Hrók og sagði Magnúsi m.a. að þegar hann færi á bak á Hrók þá vissi hann að hann kæmi alltaf heill heim. Í kjölfarið kom svo að sjálfsögðu vísa frá Magnúsi😁